Karfan er tóm.
Þór/KA og Skógarböðin hafa endurnýjað samstarfssamning sinn til næstu tveggja ára, eða út árið 2028.
Skógarböðin hafa frá upphafi verið dyggur og öflugur samstarfsaðili Þórs/KA og átt þátt í að bæta þá umgjörð sem félagið býður leikmönnum sínum upp á. Það samstarf hefur gengið afar vel og því ánægjulegt að taka saman höndum áfram og staðfesta áframhaldandi samstarf, að minnsta kosti út árið 2028. Það voru þær Íris Ósk Gísladóttir, sölu- og markaðsstjóri Skógarbaðanna, og Dóra Sif Sigtryggsdóttir, formaður stjórnar Þórs/KA, sem undirrituðu nýjan samstarfssamning núna í vikunni.
Stjórn Þórs/KA er þakklát Skógarböðunum fyrir gott samstarf og góðan stuðning.