Samstarfssamningur við LYST

Þrjár úr Þór/KA, Hulda Björg Hannesdóttir, Steingerður Snorradóttir og Hulda Ósk Jónsdóttir, brugðu …
Þrjár úr Þór/KA, Hulda Björg Hannesdóttir, Steingerður Snorradóttir og Hulda Ósk Jónsdóttir, brugðu sér í keppnistreyjurnar í Lystigarðinum á dögunum. Hér eru þær ásamt Reyni Grétarssyni eiganda LYST.

Veitingahúsið LYSt í Lystigarðinum á Akureyri hefur bæst í hóp samstarfsfyrirtækja okkar.

Fyrir nokkru var undirritaður samstarafssamningur milli stjórnar Þórs/KA og LYST. Merki LYST hefur bæst á keppnistreyjur meistaraflokks.

Stjórn Þórs/KA fagnar þessu nýja samstarfsfyrirtæki og hlakkar til sameiginlegra verkefna í framtíðinni. 


Leikmenn fagna jöfnunarmarkinu gegn Stjörnunni. Mynd: Egill Bjarni Friðjónsson.