Sandra María Jessen deilir titlinum íþróttakona Þórs

Maddie Sutton og Sandra María Jessen deila titlinum íþróttakona Þórs 2023. Mynd: Páll Jóhannesson.
Maddie Sutton og Sandra María Jessen deila titlinum íþróttakona Þórs 2023. Mynd: Páll Jóhannesson.

Sú óvenjulega staða kom upp í kjöri á íþróttakonu Þórs fyrir árið 2023 að tvær urðu hnífjafnar í kjörinu og deila titlinum.

Sandra María Jessen hlaut þennan titil fyrir árið 2022 og aftur nú, en í þetta skiptið urðu hún og körfuboltakonan Maddie Sutton jafnar í kjörinu og teljast báðar íþróttakona Þórs árið 2023.

Kjörið fer þannig fram að stjórn Þórs/KA tilnefnir knattspyrnukonu ársins úr sínum röðum og er hún í kjöri til íþróttakonu Þórs ásamt þeim sem deildir Þórs tilnefna. 

Stjórnarfólk í aðalstjórn Þórs kýs á milli þeirra sem tilnefndar eru og varð niðurstaðan sú að þessu sinni að tvær urðu hnífjafnar í kjörinu og munu því deila titlinum.

Umsögn sem Þór/KA sendi inn um Söndru Maríu þegar hún var tilnefnd sem knattspyrnukona Þórs/KA fyrir kjörið á íþróttakonu Þórs var eftirfarandi: 

Sandra María tók við fyrirliðahlutverkinu fyrir tímabilið 2023 og var lykilmanneskja í öflugu liði Þórs/KA sem endaði í 5. sæti Bestu deildarinnar í haust, auk þess að hafa unnið Kjarnafæðismótið á æfingatímabilinu og komist í úrslitaleik Lengjubikarsins. Liðið vann öll lið sem það mætti á tímabilinu að minnsta kosti einu sinni, náði frábærum árangri í útileikjum þrátt fyrir langar bílferðir og endaði í efri hluta Bestu deildarinnar.

Hún vann sér fast sæti í landsliðinu aftur eftir að hafa verið í barnsburðarleyfi og hefur verið í byrjunarliði Íslands í næstum öllum leikjum liðsins í Þjóðadeildinni í ár þrátt fyrir að hafa orðið fyrir meiðslum um mitt sumar og misst af æfingaleikjum liðsins í júlí. Sandra María var markahæst leikmanna Þórs/KA í Bestu deildinni annað árið í röð. Hún skoraði átta mörk í 19 leikjum í Bestu deildinni og auk þess 12 mörk í sjö leikjum í A-deild Lengjubikarsins og tíu mörk í fjórum leikjum í Kjarnafæðismótinu, æfingamóti í janúar.

Sandra María lék á árinu sinn 200. meistaraflokksleik fyrir Þór/KA (KSÍ leikir og Evrópukeppni) og nokkuð er síðan hún jafnaði og bætti félagsmet hjá Þór/KA í skoruðum mörkum í efstu deild og bætir það met með hverju marki sem hún skorar. Að meðtöldum leikjum í efstu deildum Tékklands og Þýskalands náði Sandra María þeim áfanga í haust að spila sinn 200. leik í efstu deild, 153 á Íslandi og 48 erlendis.

Sandra María er mikilvægur liðsmaður í ungu en öflugu liði Þórs/KA, fyrirmynd fyrir yngri iðkendur í ástundun, hugarfari, vinnuframlagi og baráttu.