Sandra María Jessen íþróttakona Akureyrar þriðja árið í röð

Sandra María með verðlaunagripinn sem íþróttakona Akureyrar fyrir ári síðan. Hún gat ekki verið viðs…
Sandra María með verðlaunagripinn sem íþróttakona Akureyrar fyrir ári síðan. Hún gat ekki verið viðstödd verðlaunahátíðina í Hofi á fimmtudag. Hulda Björg Hannesdóttir var einnig á topp tíu í kjörinu, en hún var kjörin íþróttakona Þórs 2025.

Sandra María Jessen er íþróttakona Akureyrar 2025. Það var kunngjört í hófi Íþróttabandalags Akureyrar og Akureyrarbæjar, Íþróttahátíð Akureyrar, í Hofi síðastliðinn fimmtudag. Hulda Björg Hannesdóttir, sem kjörin var íþróttakona Þórs, var einnig á meðal tíu efstu í kjörinu.

Sandra María fór sem kunnugt er út til Þýskalands í atvinnumennsku í lok ágúst, en hún var tilnefnd í kjöri á íþróttakonu Akureyrar af aðalstjórn Þórs. Þetta er í þriðja skiptið í röð sem hún hlýtur þennan titil. Upptaka frá Íþróttahátíð Akureyrar er á YouTube:

Tilnefningu Söndru Maríu í kjörinu á íþróttakonu Akureyrar fylgdi eftirfarandi texti:

Sandra María var lykilleikmaður í liði Þórs/KA í Bestu deildinni, fyrirliði liðsins og leiddi liðið í markaskorun ásamt því að hvetja liðsfélagana áfram í harðri og erfiðri baráttu. Hún sýndi ítrekað hve mikilvæg hún var liði sínu og í raun ein allra besta knattspyrnukona sem spilaði í Bestu deildinni á árinu, þar sem viðmiðið var frábær frammistaða árið á undan.

Sandra María spilaði 21 leik samtals fyrir Þór/KA í Íslandsmóti, bikarkeppni og deildabikar á árinu 2025 og skoraði 17 mörk. Þar af voru 14 leikir og tíu mörk í Bestu deildinni.

Sandra María spilaði 12 landsleiki á árinu, þar af var hún í byrjunarliðinu í átta leikjum. Hún náði þeim áfanga á árinu að spila sinn 50. landsleik fyrir Íslands hönd. Hún hefur verið fastamanneskja í íslenska landsliðinu, sem meðal annars spilaði í lokamóti EM í sumar. Þar var Sandra María ein af bestu leikmönnum Íslands, vakti athygli og var eftirsótt hjá erlendum liðum, nýorðin þrítug.

Fór svo að þýska úrvalsdeildarfélagið 1. FC Köln keypti upp samning hennar við Þór/KA og samdi við hana til tveggja ára. Hún hafði því vistaskipti í lok ágúst og kláraði tímabilið ekki með Þór/KA, sem er mikill missir fyrir Þór/KA en um leið mikil viðurkenning á því starfi sem þar fer fram.

Sandra María hefur farið á kostum með nýja félaginu sínu og verið iðin við markaskorun í þýsku Bundesligunni. Hún hefur ávallt verið í byrjunarliðinu hjá Kölnarliðinu og skoraði átta mörk í fyrstu 13 leikjum Bundesligunni, einni sterkustu deild heims, auk tveggja marka í tveimur leikjum í bikarkeppninni. Á meðal marka Söndru Maríu í deildinni er þrenna sem hún skoraði í leik í desember og varð þá fyrsta íslenska konan til að skora þrennu í þessari sterku deild. Hún er langmarkahæst í sínu liði og meðal markahæstu kvenna í deildinni það sem af er yfirstandandi keppnistímabili.

Sandra María Jessen er mikil fyrirmynd fyrir akureyrskar íþróttakonur, ungar sem eldri. Hún hefur af miklum áhuga, með mikilli ástundun, einbeitni og af einurð náð langt í sinni íþrótt og sýnt og sannað fyrir ungum knattspyrnukonum að atvinnumennska í íþróttinni er möguleg fyrir stelpur frá Akureyri ef þær eru tilbúnar að leggja á sig það sem þarf. Það hefur Sandra María sannarlega gert frá því að hún var barn og allar götur síðan í gegnum súrt og sætt, erfið meiðsli, barnsburð og annað sem á vegi hennar hefur orðið.

Baldvin Þór Magnússon úr UFA var kjörinn íþróttakarl Akureyrar og Sandra María Jessen íþróttakona Akureyrar. Jóhanna Jessen tók við verðlaunum fyrir hönd dóttur sinnar. Mynd: Axel Darri Þórhallsson fyrir ÍBA.