Sandra María meðal tíu efstu kvenna hjá ÍBA

Maddie Sutton og Sandra María Jessen, íþróttakonur Þórs 2023.
Maddie Sutton og Sandra María Jessen, íþróttakonur Þórs 2023.

Íþróttabandalag Akureyrar hefur birt lista yfir það íþróttafólk sem varð í tíu efstu sætunum í kjöri íþróttafólks Akureyrar 2023. Sandra María Jessen er þar á meðal tíu efstu kvenna. 

Sandra María var kjörin íþróttakona Þórs og deilir titlinum með körfuknattleikskonunni Maddie Sutton þar sem þær urðu jafnar í kjörinu. Þær voru báðar tilnefndar af félaginu í kjöri íþróttakonu Akureyrar 2023 og eru báðar á topp tíu listanum sem ÍBA hefur birt í frétt á vef sínum.

Íþróttahátíð Akureyrar fer fram í Hofi miðvikudaginn 31. janúar og hefst kl. 17:30. Hátíðin er öllum opin að því er fram kemur í frétt ÍBA.