Karfan er tóm.
Sandra María Jessen skoraði eitt þriggja marka Íslands í 3-1 sigri á Serbíu í æfingaleik sem fram fór í Serbíu í dag.
Sandra María Jessen spilaði í framlínunni og kom Íslandi í 1-0 strax á 3. mínútu. Hún fékk þá boltann inn í teig hægra megin frá Alexöndru Jóhannsdóttur eftir að Alexandra hafði unnið boltann framarlega á vellinum með pressu á varnarmenn Serbíu. Sandra var ekki í neinum vandræðum með að koma boltanum í markið, átti nákvæmt skot niðri út við stöngina fjær. Sandra María var að spila sinn 54. landsleik og skoraði sjöunda landsliðsmarkið sitt. Hún spilaði fyrri hálfleikinn, en var svo skipt út af.
Myndirnar hér að neðan eru teknar af Facebook-síðu Knattspyrnusambands Íslands.
Leikurinn var liður í undirbúningi landsliðsins fyrir EM í Sviss, síðasti leikur fyrir mót. Íslenska liðið spilar svo fyrsta leikinn í riðlakeppni EM á miðvikudag í næstu viku þegar stelpurnar mæta liði Finna.