Sandra María valin í A-landsliðið

Sandra María Jessen (10) ásamt nokkrum af liðsfélögunum í Þór/KA.
Sandra María Jessen (10) ásamt nokkrum af liðsfélögunum í Þór/KA.

Sandra María Jessen er í landsliðshópnum sem Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari tilkynnti í morgun fyrir tvo leiki í fyrri hluta apríl.

Ísland mætir Nýja-Sjálandi í æfingaleik sem fram fer á föstudaginn langa, 7. apríl, í Antalya Tyrklandi og svo Sviss, einnig í æfingaleik, í Zürich þriðjudaginn 11. apríl - sjá frétt á vef KSÍ.

Ísland er í 14. sæti á styrkleikalista FIFA sem birtur var í morgun og fer upp um tvö sæti eftir tvo sigra og jafntefli á Pinatar Cup í febrúar.

Sandra María var í A-landsliðshópi landsliðshópi leikmanna sem spila á Íslandi, en sá hópur kom saman til æfinga í nóvember. Hún var hins vegar ekki valin í landsliðið sem tók þátt í Pinatar Cup núna í febrúar.

Síðasta innkoma Söndru Maríu í landsleik var gegn Úkraínu á Pinatar Cup í mars 2020. Hún á að baki 31 landsleik og hefur skorað í þeim leikjum sex mörk.

Hér má sjá hópinn á vef KSÍ. Við komum með nýja færslu í dag með viðbrögðum frá Söndru Maríu.


Landsliðshópurinn. Mynd frá KSÍ.