Sigur hjá 2. fokki vestra

Þór/KA/Völsungur í 2. flokki vann Vestra vestra í gær og er nú í 3. sæti B-deildar.

Þór/KA/Völsungur vann öruggan sigur á Vestra í gær, 4-0, en leikurinn fór fram á Skeiðisvelli í Bolungarvík. Hildur Jana Hilmarsdóttir gerði þrennu fyrir okkar lið á rúmum hálftíma í fyrri hálfleik og Hafrún Mist Guðmundsdóttir skoraði eitt mark.

Leikskýrslan á vef KSÍ.

Liðið situr nú í 3. sæti B-deildar með 16 stig. Stjarnan/Álftanes hefur einnig 16 stig, en betri markatölu. Fjölnir er í efsta sæti deildarinnar með 27 stig. 

Þór/KA/Völsungur hefur lokið níu leikjum og á fimm leiki eftir.

Stöðutafla, úrslit leikja og leikjadagskrá á vef KSÍ.