Sigur í síðasta leik fyrir mót

Sú elsta og sú yngsta. Arna Sif Ásgrímsdóttir (1992) og Bríet Fjóla Bjarnadóttir (2010). Bríet Fjóla…
Sú elsta og sú yngsta. Arna Sif Ásgrímsdóttir (1992) og Bríet Fjóla Bjarnadóttir (2010). Bríet Fjóla skoraði tvö mörk í leiknum í gær og Arna Sif eitt. Mynd: Ármann Hinrik.
- - -

Þór/KA tók á móti FHL í æfingaleik á nýja Þórsvellinum, Ásnum, í gærkvöld. Lokatölur urðu 9-0, en aðeins eitt mark skorað í fyrri hálfleiknum.

Birgitta Rún Finnbogadóttir, Bríet Fjóla Bjarnadóttir og Margrét Árnadóttir skoruðu tvö mörk hver og þær Arna Sif Ásgrímsdóttir, Karen María Sigurgeirsdóttir og Ísey Ragnarsdóttir eitt hver. Erin Flurey átti þrjár stoðsendingar, Angela Mary Helgadóttir tvær og Hildur Anna Birgisdóttir og Hulda Ósk Jónsdóttir eina hvor.

Þrátt fyrir þungar sóknir lengi vel í fyrri hálfleiknum leit fyrsta mark leiksins ekki dagsins ljós fyrr en á 43. mínútu. Bríet Fjóla Bjarnadóttir skoraði þá eftir fyrirgjöf Margrétar Árnadóttur. Leikmönnum gekk betur að koma boltanum í netið eftir leikhlé og komu fjögur mörk á fimm og hálfri mínútu, staðan orðin 5-0 þegar 11 mínútur voru liðnar af seinni hálfleiknum. Mörkin komu svo með reglulegu millibili út leikinn, það síðasta úr víti þegar tvær mínútur voru eftir af leiknum.

Þór/KA - FHL 9-0 (1-0)

  • 1-0 - Bríet Fjóla Bjarnadóttir (43'). Stoðsending: Margrét Árnadóttir.
    - - -
  • 2-0 - Margrét Árnadóttir (51'). Stoðsending: Erin Flurey.
  • 3-0 - Arna Sif Ásgrímsdóttir (53'). Stoðsending: Erin Flurey.
  • 4-0 - Margrét Árnadóttir (54'). Stoðsending: Erin Flurey.
  • 5-0 - Karen María Sigurgeirsdóttir (56'). Stoðsending: Hulda Ósk Jónsdóttir.
  • 6-0 - Bríet Fjóla Bjarnadóttir (68'). Stoðsending: Angela Mary Helgadóttir.
  • 7-0 - Birgitta Rún Finnbogadóttir (77'). Stoðsending: Angela Mary Helgadóttir.
  • 8-0 - Ísey Ragnarsdóttir (81'). Stoðsending: Hildur Anna Birgisdóttir.
  • 9-0 - Birgitta Rún Finnbogadóttir (88') (víti).
  • Myndaalbúm - Ármann Hinrik