Sigur í Víkinni

Krista Dís Kristinsdóttir og Anna Guðný Sveinsdóttir sáu um að skora mörkin fyrir Þór/KA í dag.
Krista Dís Kristinsdóttir og Anna Guðný Sveinsdóttir sáu um að skora mörkin fyrir Þór/KA í dag.

 

Lið 3. flokks vann sinn annan sigur í röð á nýhöfnu Íslandsmóti, í þetta sinn gegn Víkingi í Reykjavík.

Þór/KA skoraði eitt mark í hvorum hálfleik og vann Víkinga 2-0. Það voru þær Anna Guðný Sveinsdóttir og Krista Dís Kristinsdóttir sem skoruðu mörkin í dag.

Liðið hefur nú unnið tvo leiki, hefur því sex stig og markatöluna 10-0.

Leikskýrslan á vef KSÍ.

Staðan í mótinu, úrslit og leikjadagskrá á vef KSÍ.

Af 16 leikmönnum sem voru í hópnum hjá Þór/KA í dag eiga sjö leikmenn að baki leiki í meistaraflokki, með Þór/KA og/eða Hömrunum.