Sigurmark með síðustu spyrnu leiksins

Þór/KA2 mætti liði Völsungs í Kjarnafæðismótinu í kvöld og vann 2-1. 

Völsungsliðið var fámennt og fékk því lánaða fjóra leikmenn frá Þór/KA. Bríet Jóhannsdóttir kom Þór/KA2 yfir á 21. mínútu með langskoti. Staðan 1-0 í leikhléinu. Völsungur náði að jafna á 62. mínútu þegar leikmaður Þórs/KA varð fyrir því óláni að setja knöttinn í eigið net. 

Uppgjöf er samt ekki til í orðabókinni hjá okkar stelpum. Þær héldu áfram að berjast og uppskáru loksins í uppbótartímanum. Anna Guðný Sveinsdóttir fékk þá boltann ein og óvölduð vinstra megin í teignum og skoraði af stuttu færi. Þetta var síðasta spyrna leiksins, eða svo gott sem því þegar Völsungur byrjaði á miðju eftir markið flautaði dómarinn leikinn af. 

Sigur í höfn, 2-1, í lokaleik Þórs/KA2 í mótinu. Liðið endar með níu stig, vann þrjá leiki, en tapaði einungis innbyrðis viðureigninni við hitt Þór/KA liðið. 

Eins og áður tefldi Þór/KA fram mjög ungu liði og voru fimm leikmenn að spila sínar fyrstu mínútur í meistaraflokksleik. Bæði lið reyndar með marga unga leikmenn, okkar stelpur fæddar 2004-2010 og leikmenn Völsungs 2001-2008.

Kjarnafæðismótið telst að vísu æfingamót þannig að þessir leikir teljast ekki með sem opinberir meistaraflokksleikir - en þarna komu í fyrsta skipti við sögu þær Klara Parraguez Solar (2007) og Úlfhildur Embla Klemenzdóttir (2006), sem báðar spiluðu með Völsungi í þessum leik, og svo Ásdís Hannesdóttir (2008), Ísey Ragnarsdóttir (2008) og Bríet Fjóla Bjarnadóttir. Bríet Fjóla var langyngst á vellinum, fædd 2010 og varð 13 ára núna í janúar.  

Leikskýrslan á vef KSÍ.
Mótið á vef KSÍ.

FHL og Tindastóll mættust einnig í dag í Kjarnafæðismótinu og hafði Tindastóll sigur, 1-0.

Þór/KA mætir einmitt liði FHL kl. 15 á morgun, sem sagt tveggja leikja helgi hjá FHL.