Staðan á vellinum kl. 7:39 í gærmorgun, að morgni leikdags.
- - -
Þór/KA og Stjarnan gerðu 2-2 jafntefli þegar liðin mættust í 3. umferð Bestu deildarinnar í gær. Stjarnan náði tveggja marka forystu með mörkum Akureyringsins Andreu Mistar Pálsdóttur í fyrri hálfleiknum, en systurnar Amalía og Margrét Árnadætur skoruðu í seinni hálfleiknum. Jöfnunarmarkið kom á 90. mínútu og minnstu munaði að þriðja markið kæmi á lokasekúndum viðbótartímans. Þór/KA er í 8. sæti Bestu deildarinnar með tvö stig úr fyrstu þremur leikjunum.
- Segja má með smá orðaleik eða útúrsnúningi að stoðsendingarnar í mörkum Þórs/KA hafi verið langar því þær komu báðar alla leið frá Skagaströnd. Það voru þær Birgitta Rún Finnbogadottir og Elísa Bríet Björnsdóttir, sem báðar eru Skagstrendingar og komu til félagsins frá Tindastóli fyrir tímabilið, sem gáfu stoðsendingar í mörkunum.
- Mörkin komu úr Heiðarlundinum, ef svo má segja.
- Arna Sif Ásgrímsdóttir spilaði sinn 200. leik fyrir Þór/KA í efstu deild og er aðeins níunda knattspyrnukonan sem nær þeim áfanga að spila 200 leiki fyrir sama félagið í efstu deild hér á landi, eins og fram kom í grein Víðis Sigurðssonar á akureyri.net í gærkvöld.
Útlitið var ekki glæsilegt þegar Akureyringar vöknuðu í gærmorgun, tíu sentimetra jafnfallinn snjór á gervigrasinu og jafnvel útlit fyrir versnandi veður þegar liði á daginn. Snjóbræðslukerfið undir vellinum mallaði og vann sína vinnu í hljóði, snjóþykktin minnkaði og undir hádegið fóru að sjást grænar skellur í vellinum, eins og vorið væri að koma í þriðja sinn.
Staðan kl. 12:28

Sólarglæta og hitastig ofan við núllið hjálpuðu svo til þegar leið fram yfir hádegið og loks var völlurinn orðinn auður. Svartsýnustu spár um norðanhret um fimmleytið, þegar leikurinn átti að hefjast, gengu ekki eftir þó svalt væri sunnan við Bogann. Leikurinn var sem sagt spilaður úti eins og stóð til í upphafi, þó svo um tíma hafi verið talað um 99,99% líkur á að leikurinn yrði færður inn. En líkurnar á að hann yrði úti voru þá 0,01% og sú varð raunin. Þá er bara að vitna í fleyg orð Mike Myers í Wayne's World: Yes, there is a chance!
Staðan kl. 12:28

Klukkan tifaði og dagurinn leið, loks var komið að leik. Stjarnan lék undan vindi í fyrri hálfleiknum og tvívegis náði Andrea Mist að nýta sér vindinn, auk þess sem ýtingar og þéttur pakki leikmanna inni í markteig urðu til þess að hornspyrnur hennar á 9. og 40. mínútu enduðu með marki. Stjarnan með tveggja marka forystu eftir fyrri hálfleikinn.
Þór/KA-stelpurnar mættu engu að síður fullar sjálfstrausts út í seinni hálfleikinn og áttu skínandi leik á köflum, sköpuðu sér nokkur góð færi og á endanum minnkaði Amalía Árnadóttir muninn.
- 1-2 - Amalía Árnadóttir
Þór/KA átti innkast vinstra megin á eigin vallarhelmingi, boltinn barst til Karenar Maríu sem kom honum út á hægri kant á Birgittu Rún. Hún fór áfram upp hægri kantinn, stakk sér framhjá varnarmanni, sendi boltann fyrir þar sem Amalía var mætt inni á markteig og skallaði í markið.
Færin héldu áfram að koma síðasta stundarfjórðunginn, bæði lið fengu tækifæri til að bæta við mörkum, en sóknarþungi Þórs/KA var þó meiri lengst af seinni hálfleiknum. Uppgjöf er auðvitað ekki á dagskrá og uppskeran skilaði sér að lokum þegar vallarklukkan sýndi 90:05. Hin systirin úr Heiðarlundinum kom þá boltanum í netið og jafnaði leikinn.
- 2-2 - Margrét Árnadóttir
Hornspyrna frá hægri. Elísa Bríet sendir út í teiginn við nærstöng þar sem Margrét er mætt og tekur hann viðstöðulaust, markvörður Stjörnunnar nær að koma við boltann, en áfram hélt hann í netið eins og til var ætlast.
Þór/KA - Stjarnan 2-2 (0-2)
- 0-1 - Andrea Mist Pálsdóttir (9').
- 0-2 - Andrea Mist Pálsdóttir (40').
- - -
- 1-2 - Amalía Árnadóttir (75'). Stoðsending: Birgitta Rún Finnbogadottir.
- 2-2 - Margrét Árnadóttir (90+1'). Stoðsending: Elísa Bríet Björnsdóttir.
- Leikskýrslan á vef KSÍ
- Besta deildin
- Næsti leikur: ÍBV - Þór/KA 10. maí kl. 14
Leikur að tölum
- 86 - Leikurinn var ekki á kjörtíma fyrir áhorfendur og reyndar ekki fyrir sjálfboðaliða í kringum leikinn heldur. Veðrið var heldur ekki beinlínis að kalla á fólk að koma enda reyndust áhorfendur, við talningu gæslufólks, vera 86 talsins.
- 140 - Karen María Sigurgeirsdóttir spilaði sinn 140. leik í efstu deild. Þar af eru 123 leikir fyrir Þór/KA, en hún spilaði einnig 17 leiki fyrir Breiðablik
- 200 - Arna Sif Ásgrímsdóttir spilaði sinn 200. leik fyrir Þór/KA í efstu deild. Hún er nú að hefja sína 13. leiktíð með hjá okkar félagi, en á einnig að baki leiki í efstu deild með Val og svo í Svíþjóð og Ítalíu. Fyrsti leikur hennar í efstu deild, sem þá hét Landsbankadeildin, var í Keflavík 21. maí 2007. Arna Sif spilaði með Þór/KA árin 2007-2014, aftur 2018-2021 og er nú mætt norður fyrir nokkrum mánuðum og tilbúin í slaginn með Þór/KA í sumar. Í þessum 200 leikjum með Þór/KA í efstu deild hefur hún skorað 46 mörk, eða 0,23 að meðaltali í leik sem verður að teljast fínt hjá varnarmanni. Á þeim árum sem meistaraflokksferill Örnu Sifjar nær yfir
- 640 - Ísey Ragnarsdóttir hefur fengið félagaskipti í póstnúmer 640, til Völsungs á Húsavík, á lánssamningi á milli félaganna.


