Styðjum landsliðið og styrkjum okkar félag í leiðinni

Þegar þú kaupir miða á landsleiki A-landsliðsins getur þú valið Þór/KA sem styrkþega og þá fara 20% af andvirði miðans til félagsins. 
 
Fram undan eru mikilvægir heimaleikir A-landsliðsins í undankeppni HM, gegn Úkraínu 14. apríl og svo sjálfum Evrópumeisturunum, Englendingum, 18. apríl. Þar munum við í Þór/KA vonandi eiga okkar sömu tvo fulltrúa og í síðustu verkefnum, Söndru Maríu Jessen og Maríu Ólafsdóttur Gros. 
 
Miðasala á leikina hefst núna um mánaðamótin, 31. mars á leikinn gegn Úkraínu og 1. apríl á leikinn gegn Englandi. KSÍ býður þeim sem kaupa miða að velja sér félag þegar miði er keyptur og renna þá 20% af andvirði miðans til þess félags sem kaupandinn velur og kjörið fyrir okkar fólk að fjölmenna á landsleikina, styðja stelpurnar okkar í erfiðum og mikilvægum leikjum og styrkja Þór/KA í leiðinni.