Styrkur veitir skattaafslátt

Vissir þú að með því að styrkja Þór/KA getur þú fengið skattaafslátt? Skoðaðu dæmið. Lágmarksupphæð styrks til að fá lækkun á tekjuskattsstofni er 10.000 krónur, en hámark 350.000 krónur - eða 700.000 krónur hjá hjónum.

Á vef ríkisskattstjóra – skatturinn.is – má finna upplýsingar um skattafrádrátt vegna gjafa/framlaga til almannaheillafélaga. Ríkisskattstjóri birtir þar lista yfir viðurkennda móttakendur, en almannaheillafélög (þar á meðal íþróttafélög) þurfa sjálf að sækja um að vera á þessum lista og endurnýja þá umsókn árlega. Þór/KA kvennabolti er á þessum lista. Framlag til félagsins getur því veitt einstaklingum skattaafslátt.

Þetta er í raun mjög einfalt. Fólk sem ákveður að styrkja félagið getur komið þeim skilaboðum áleiðis til stjórnar í netfangið thorka@thorka.is. Það er síðan einfaldlega nóg að millifæra upphæð að eigin vali eða óska eftir því að fá reikning í heimabanka. Framkvæmdastjóri og bókari sjá um að upplýsingar um styrki af þessu tagi fari áfram til ríkisskattstjóra og þær eru færðar fyrirfram inn á skattaframtal viðkomandi. Til að tryggja að þetta skili sér er mikilvægt að hafa samband og láta vita af styrk og óska eftir að upplýsingarnar fari til skattsins. Félagið skilar upplýsingum til skattsins og frádráttur frá tekjuskattsstofni er áritaður fyrirfram inn á framtalið, í reit 155 í klafla 2.6. á tekjusíðu framtals.

Þegar fólk ákveður að styrkja Þór/KA er hægt að velja um að millfæra beint inn á reikning félagsins – 0565-26-571, kt. 690317-1090 – eða fá reikning í heimabanka. Heimabankarnir bjóða svo auðvitað upp á að velunnarar félagsins setji inn framvirka (sjálfvirka) millifærslu, til dæmis ákveðna upphæð í hverjum mánuði. 

Lágmarksupphæð til að nýta slíkan frádrátt er 10.000 krónur, en að hámarki getur einstaklingur fengið lækkun á tekjuskattsstofni upp á 350.000 krónur, og hjón upp á 700.000 krónur. Ofanritað á við um einstaklinga, en rekstraraðilar geta einnig styrkt félagið og nýtt sér skattafrádrátt, sem getur numið 1,5% af rekstrartekjum á því ári sem gjöf er afhent eða framlag er veitt.