Sunnudagur í Mosó

 

Annar leikur liðsins í Lengjubikarnum 2022 verður gegn Aftureldingu í Mosfellsbænum sunnudaginn 27. febrúar og hefst kl. 14.

Aðeins tveimur leikjum er lokið í riðli 2, þar sem Fylkir sigraði Þrótt í fyrstu umferðinni og Þór/KA sigraði Keflavík. Leik Vals og Aftureldingar í fyrstu umferðinni var frestað. Fylkir og Keflavík mætast á sama tíma og við spilum í Mosfellsbænum og Þróttur og Valur mætast á mánudagskvöld.

Hér má sjá okkar riðil, stöðu, úrslit og leikjadagsrá.

Í riðli 1 í A-deildinni leika KR, Breiðablik, Stjarnan, Tindastóll, ÍBV og Selfoss. Tvö efstu liðin í hvorum riðli fara í undanúrslit, sem áætlað er að fari fram 26. mars, en úrslitaleikurinn er á dagskrá 1. apríl.