Tækniskóli Þórs/KA - tímasetningar

Tækniskóli Þórs/KA verður í Boganum næstu daga. Skráning fór fram í gegnum Sportabler til og með 20. mars, en við höfum síðan þá verið að taka við skráningum í netfanginu thorkastelpur@gmail.com

  • Yngri hópur - 6.-7. flokkur - 2014-2017
    Mánudagur og þriðjudagur kl. 10:00-11:30
    Verð: 5.500 kr.
  • Eldri hópur - 4.-5. flokkur - 2010-2013
    Mánudagur og þriðjudagur kl. 13:00-14:30
    Miðvikudagur kl. 10-11:30
    Verð: 10.500 kr.

Þátttakendur sem skráðir voru í gegnum Sportabler fá rukkun þar.

Allar sem voru skráðar með tölvupósti hafa fengið svar með upplýsingum um greiðslur, birtum þær upplýsingar hér líka: Greiða má með millifærslu á 0565-26-3289, 6903171090. Sendið kvittun í thorkastelpur@gmail.com ef greitt er með millifærslu. Einnig má greiða á staðnum fyrir fyrsta tíma (kort eða peningar).