Þór/KA fær styrk úr Menningar- og viðurkenningarsjóði KEA

Fulltrúar styrkþega við athöfnina í Hofi í gær. Mynd: KEA.is.
Fulltrúar styrkþega við athöfnina í Hofi í gær. Mynd: KEA.is.

Í gær voru afhentir styrkir Menningar- og viðurkenningarsjóðs KEA, eins og venjan er á fullveldisdeginum 1. desember.

Alls fengu 60 félög og einstaklingar styrk úr sjóðnum, en styrkjunum er úthlutað í þremur flokkum samkvæmt reglugerð sjóðsins, þ.e. til menningar- og samfélagsverkefna, íþrótta- og æskulýðsfélaga og ungs afreksfólks. Úthlutað var samtals tæplega 25 milljónum króna.

Þór/KA er á meðal styrkþega og er KEA og stjórn sjóðsins hér mer færðar þakkir fyrir stuðninginn.

Lista yfir alla styrkþega má finna á vef KEA - sjá hér.