Þór/KA mætir í Árbæinn

 

Næstsíðasta umferð Pepsi Max-deildarinnar verður spiluð í dag. Okkar stelpur mæta Fylki í Árbænum kl. 14:00.

Fyrir leikinn er Þór/KA í 7. sæti deilarinnar með 18 stig, en Fylkir í 9. og næstneðsta sæti með 13 stig. Fyrri leik liðanna lauk með markalausu jafntefli.

Miðasala á leikinn er á tix.is - smellið hér til að fara á miðasöluvef:Tix.is - Fylkir – Þór/KA. Miðaverð er 2.000 krónur fyrir fullorðna, en frítt fyrir 16 ára og yngri.

Við hvetjum okkar fólk á suðvesturhorninu til að kíkja í Árbæinn og hvetja stelpurnar okkar til sigurs. Stuðningur úr stúkunni skiptir máli - það er margsannað.

Myndir Páls Jóhannessonar úr fyrri leik liðanna - myndasafn á thorsport.is.