Þór/KA mætir Snæfellsnesi í undanúrslitum B-liða

Þór/KA mætir liði Snæfellsness í undanúrslitum Íslandsmóts B-liða í 3. flokki miðvikudaginn 14. september.

Okkar stelpur enduðu í 2. sæti í A-riðli keppninnar, unnu þar átta leiki, gerðu eitt jafntefli og töpuðu þremur, náðu sér því í 25 stig. FH/ÍH vann riðilinn með yfirburðum, vann alla tólf leikina. Lið Snæfellsness vann B-riðilinn og Stjarnan/Álftanes varð í 2. sæti. Tvö efstu lið úr hvorum riðli fara í úrslitakeppni.

Undanúrslitin fara fram á miðvikudag og hefjast leikirnir kl. 17. Þór/KA fer til Ólafsvíkur og mætir liði Snæfellsness, en FH/ÍH og Stjarnan/Álftanes mætast í hinum leiknum. Sigurlið úr þessum leikjum spila síðan til úrslita um Íslandsmeistaratitil B-liða.

Við óskum stelpunum góðs gengis á morgun.