Þór/KA með eigin vefsíðu

Stelpurnar í Þór/KA gera sig klárar í seinni hálfleikinn í heimaleik gegn Breiðabliki þann 28. ágúst…
Stelpurnar í Þór/KA gera sig klárar í seinni hálfleikinn í heimaleik gegn Breiðabliki þann 28. ágúst 2021.

Mynd: Egill Bjarni Friðjónsson

Hér hefur knattspyrnufélagið Þór/KA opnað sína eigin vefsíðu í samstarfi við Stefnu. Með þessum nýja vef er hugmyndin að allt efni sem tengist félaginu, nýjar fréttir jafnt og saga þess, verði aðgengilegt á einum stað. 

Við munum gefa okkur einhvern tíma til að vinna efni á þennan nýja vef því af nógu er að taka. Hér verða sagðar fréttir af starfi félagsins, leikjum og leikmönnum liðanna okkar, ásamt því að birta myndir úr leikjum í samstarfi við okkar áhugasömu og velviljuðu ljósmyndara sem myndað hafa á leikjum okkar. 

Leikmenn, myndir og upplýsingar, verða jafnframt áberandi á vefnum. 

Vefverslun er eitt af því sem einnig er á dagskrá og hugmyndin að bjóða upp á alls konar vörur merktar Þór/KA. 

Við hlökkum til þess að eiga í góðu sambandi við stuðningsfólk okkar, hér eftir sem hingað til, og vonandi gerir þessi vefur okkur auðveldara að miðla upplýsingum til allra sem á þurfa að halda, jafnt stuðningsfólks okkar sem annarra, fjölmiðlafólks og áhugafólks um knattspyrnu.