Þór/KA semur við Lauren Lapomarda

Stjórn Þórs/KA hefur samið við Lauren Lapomarda um að leika með liðinu út yfirstandandi tímabil. Lauren hefur tvöfalt ríkisfang, bandarískt og ítalskt. 

Lauren kemur til félagsins frá Dallas Trinity FC sem leikur í USL deildinni í Bandaríkjunum. Hún ólst upp í Texas og æfði knattspyrnu frá unga aldri, keppti á hæsta stigi unglingaknattspyrnu í Bandaríkjunum og fjölda erlendra móta, ásamt því að vinna landstitla með liðum sínum. Hún segir þennan feril sem unglingur í knattspyrnu hafa búið sig vel undir að koma inn í háskólaboltann í Bandaríkjunum og þaðan í atvinnumennsku.

Hún spilaði í fjögur ár með háskólaliði Texas-háskóla (University of Texas) þar sem hún spilaði 101 leik og var í byrjunarliði í öllum leikjum. „Það var ótrúleg upplifun að keppa á þetta háu stigi og koma fram sem fulltrúi fyrir Texas,“ segir Lauren um háskólaferilinn. Eftir háskólann flutti hún til Ítalíu og gekk til liðs við Parma Calcio, en sneri svo aftur til Bandaríkjanna og gekk til liðs við Dallas Trinity FC sem spilar í USL deildinni í Bandaríkjunum. Til gamans má geta þess að á Ítalíu var hún hjá sama félagi og Margrét Árnadóttir samdi við í upphafi árs 2022. 

Lauren kveðst spennt og þakklát fyrir tækifærið að ganga til liðs við Þór/KA. „Ég er mjög spennt fyrir þessu nýja tækifæri á Íslandi. Ég hlakka til að halda áfram að vaxa sem leikmaður, upplifa nýja deild og menningu og það sem er mikilvægast, að komast aftur á völlinn og spila fyrir liðið,“ segir Lauren um væntanlega komu sína til Íslands. „Ég vissi dálítið um deildina á Íslandi áður en ég komst í samband við félagið því nokkrir fyrrum liðsfélagar og leikmenn sem ég hef spilað gegn hafa spilað í deildinni. Ég hef heyrt dálítið um deildina í gegnum þær, en er mjög spennt að fá að upplifa þetta sjálf og kynnast deildinni og liðunum.“

Lauren hefur nú þegar fengið leikheimild með Þór/KA.

Þór/KA býður Lauren Lapomarda velkomna í okkar öfluga hóp.