Karfan er tóm.
U19 landslið Íslands býr sig nú undir þátttöku í lokamóti EM sem fram fer í Bosníu-Herzegovínu 29. júní til 10. júlí. Tveir hópar hafa verið valdir í verkefni núna í byrjun júní.
Annars vegar kemur hópur saman þriðjudaginn 2. júní og heldur síðan til Svíþjóðar þar sem liðið tekur þátt í æfingamóti og mætir Noregi 6. júní og Svíþjóð 8. júní. Halldór Jón Sigurðsson, þjálfari 19 landsliðsins, hefur valið tvær frá Þór/KA í þetta verkefni, þær Birgittu Rún Finnbogadóttur (2008) og Elísu Bríeti Björnsdóttur (2008).
Hins vegar er hópur leikmanna á eldra árinu, fæddar 2007, sem kemur saman til æfinga í byrjun júní. Þar hefur ein úr okkar röðum, Hildur Anna Birgisdóttir, verið valin.
Verkefnin hjá U19 núna í byrjun júní eru liður í undirbúningi fyrir lokamót EM sem hefst í lok júnímánaðar. Leikir íslenska liðsins á því móti verða gegn Austurríki 28. júní, Spáni 1. júlí og Sviss 4. júlí.
Tvær frá Þór/KA héldu nýlega til Finnlands með U16 landsliðinu á UEFA Development Tournament. Það voru þær Emma Júlía Cariglia (2011) og Hafdís Nína Elmarsdóttir (2010).
Íslenska liðið lék þrjá leiki í mótinu, gegn Unverjum, Írum og Finnum. Því miður náði liðið ekki að skora mark og tapaði öllum leikjunum.
Hafdís Nína var í byrjunarliðinu í tveimur leikjum og Emma Júlía í einum, og komu við sögu í öllum þremur leikjum liðsins.