Þrjár frá Þór/KA með U19, fjórar með U15

Iðunn Rán Gunnarsdóttir, Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir og Steingerður Snorradóttir eru á leið í verk…
Iðunn Rán Gunnarsdóttir, Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir og Steingerður Snorradóttir eru á leið í verkefni með U19 landsliðinu.

Þrjár frá Þór/KA eru í 18 manna hópi sem valinn var fyrir tvo æfingaleiki núna í janúar og fjórar eru í æfingahópi U15.

Margrét Magnúsdóttir, þjálfari U19 landsliðs kvenna í knattspyrnu, valdi fyrir nokkru 18 leikmenn fyrir tvo æfingaleiki gegn Portúgal og Finnlandi sem fram fara á næstu dögum. Hópurinn heldur utan á morgun.

Leikirnir eru liður í undirbúningi U19 landsliðsins fyrir undankeppni EM í vor. Leikið er í Portúgal. Í hópnum sem spilar æfingaleikina núna í janúar eru þrjár frá Þór/KA, þær Iðunn Rán Gunnarsdóttir, Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir og Steingerður Snorradóttir.

U19 hópurinn (ksi.is)

Fjórar í U15 æfingahópi

Magnús Örn Helgason, þjálfari U15 landsliðs kvenna í knattspyrnu, hefur valið hóp sem kemur saman til æfinga í Miðgarði í Garðabæ dagana 23.-25. janúar. Í þessum hópi eru fjórar frá Þór/KA, þær Aníta Ingvarsdóttir, Bríet Fjóla Bjarnadóttir, Karen Hulda Hrafnsdóttir og Ragnheiður Sara Steindórsdóttir.

U15 hópurinn (ksi.is)