Þrjár með U19 og fjórar með U16

Ísfold Marý Sigtryggsdóttir, Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir og Jakobína Hjörvarsdóttir.
Ísfold Marý Sigtryggsdóttir, Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir og Jakobína Hjörvarsdóttir.

Yngri landsliðin koma saman til æfinga í janúarmánuði. Þar eigum við okkar fulltrúa eins og ávallt.

U19 landsliðið, sem Margrét Magnúsdóttir stýrir, kemur saman til æfinga í fyrri hluta komandi viku, 16.-18. janúar. Meðal annars mun liðið leika æfingaleik við meistaraflokk Stjörnunnar. U19 landsliðið undirbýr sig fyrir æfingamót í Algarve í Portúgal 14.-22. febrúar, en liðið er einnig á leið í undanriðil fyrir EM 2023 í vor.

Okkar stelpur í U19:

Ísfold Marý Sigtryggsdóttir
Jakobína Hjörvarsdóttir
Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir

Nánar hér á vef KSÍ.

Fjórar æfa með U16

Magnús Örn Helgason og Margrét Magnúsdóttir, landsliðsþjálfarar U16, verða með æfingar 18.-20. janúar og hafa valið æfingahóp. Þar eigum við í Þór/KA fjóra fulltrúa, allar fæddar 2007, sem eru:

Katla Bjarnadóttir
Karlotta Björk Andradóttir
Kolfinna Eik Elínardóttir
Tinna Sverrisdóttir

Nánar hér á vef KSÍ.