Þrjú lið, brons og þreytandi heimferð af Gothia Cup

Stelpurnar stilltu sér upp við Erró-vegginn á Keflavíkurflugvelli við brottför.
Stelpurnar stilltu sér upp við Erró-vegginn á Keflavíkurflugvelli við brottför.

Þrjú lið úr 3. flokki Þórs/KA tóku þátt í Gothia Cup í liðinni viku. Samtals héldu 43 stelpur, sex fararstjórar og tveir þjálfarar utan til Svíþjóðar sunnudaginn 12. júlí og hófu leik daginn eftir. Mótinu lauk síðastliðinn laugardag, en ferðalagið tók heldur lengri tíma en ætlunin var vegna tafa á flugi, eins og komið hefur fram í fréttum fjölmiðla. Hópurinn renndi loks í hlað á Akureyri á tíunda tímanum að morgni þriðjudagsins 21. júlí.

Tvö af liðum Þórs/KA spiluðu í flokki G16 og eitt í G15. Gothia Cup er risastórt mót sem fram fer í Gautaborg á hverju ári. Að þessu sinni voru 1.964 lið stúlkna og drengja á aldrinum 11-18 ára frá 77 þjóðlöndum. Alls voru spilaðir 4.947 leikir á mótinu.

Brons hjá liði 1 í G16

Lið 1 frá Þór/KA í G16 flokknum vann alla leiki sína í riðlinum og fór áfram í A-úrslitin. Andstæðingarnir í riðlinum voru tvö sænsk lið og eitt mexíkóskt. Í útsláttarkeppninni mættu stelpurnar liði frá Bandaríkjunum, Noregi, Englandi og Svíþjóð. Stelpurnar fóru alla leið í undanúrslit, en töpuðu þar fyrir sænsku liði og unnu til bronsverðlauna.

Riðlakeppni

  • Mossens BK - Þór/KA 1-7
  • Þór/KA - Academy Elite 4-0
  • Danderyds SK - Þór/KA 1-8

32 liða A-úrslit

  • Þór/KA - VA United 4-0

16 liða A-úrslit

  • Þór/KA - Fredrikstad FK 4-3

Átta liða úrslit

  • Eagles FC - Þór/KA 0-3

Undanúrslit

  • Þór/KA - Bjärreds FF 0-2

Allar upplýsingar: Gothia Cup - Results

Lið 2 í G16 fór í átta liða úrslit

G16, lið 2, spilaði í riðli með einu norsku og tveimur sænskum liðum. Stelpurnar gerðu tvö jafntefli og töpuðu einum leik í riðlinum og fóru í B-úrslit. Þar sigruðu þær sænskt lið í 16 liða B-úrslitum, en töpuðu fyrir norsku liði í átta liða úrslitum.

Riðlakeppni

  • Älvsborg FF - Þór/KA 1-1
  • Þór/KA - Lørenskog IF 1-2
  • Österåker United FK - Þór/KA 2-2

16 liða B-úrslit

  • Þór/KA - FC Norrsken 4-0

Átta liða B-úrslit

  • Þór/KA - Oppsal IF 0-2

Allar upplýsingar: Gothia Cup - Results

 

G15 fór í 16 liða úrslit

U15 liðið mætti liðum frá Svíþjóð og Bandaríkjunum í riðlakeppninni, endaði þar í 3. sæti eftir einn sigur og tvö töp, vann sænskt lið í 32 liða úrslitum, en féll út eftir tap fyrir ensku liði í 16 liða úrslitunum.

Riðlakeppni

  • Lindome GIF - Þór/KA 3-1
  • Þór/KA - Fox Soccer Academy 0-6
  • Tvärskogs IF - Þór/KA 0-1

32 liða útsláttur

  • Þór/KA - Markaryds IF 1-0

16 liða útsláttur

  • Þór/KA - All Star Soccer Academy

Allar upplýsingar: Gothia Cup - Results

Við fengum nokkrar myndir úr ferðinni hjá fararstjórum og þjálfurum.