Þrjú lið frá Þór/KA á Gothia Cup í Svíþjóð

Hópurinn stillti sér upp við Erró-vegginn við brottförina.
Hópurinn stillti sér upp við Erró-vegginn við brottförina.

Þrjú lið frá Þór/KA héldu utan til Svíþjóðar í gær til þátttöku í Gothia Cup sem hófst í dag.

Þór/KA teflir fram tveimur liðum í flokki 16 ára og einu í flokki 15 ára. Hópurinn samanstendur af 43 stelpum, sex fararstjórum og tveimur þjálfurum, sem eru Anton Orri Sigurbjörnsson og Þórólfur Sveinsson.

Öll liðin hófu keppni í dag. Lið 3 beið 1-3 ósigur, lið 2 gerði 1-1 jafntefli og lið eitt vann sinn andstæðing, 7-1.

Hér er hægt að fylgjast með úrslitum leikja og gengi liðanna á results.gothiacup.se, en hér að neðan eru tenglar á úrslit leikja hjá okkar liðum, og að auki hægt að kaupa aðgang að útsendingum.: