Treyjudagurinn: Í hvaða treyju mættir þú í dag?

Styrktarfélagið Börn með krabbamein stendur fyrir átaki þessa dagana sem nær hámarki í dag með Treyjudeginum. Fólk er hvatt til að mæta í sínum uppáhaldstreyjum í vinnu, skóla og annað, taka myndir og setja á samfélagsmiðla merktar #treyjudagurinn. Aðalatriðið er þó að heimsækja vefinn treyjudagur.is og ganga þar frá styrk til félagsins.

Treyjudagurinn er haldinn í dag, í fyrsta skipti á Íslandi, en það er styrktarfélagið Börn með krabbamein sem stendur að deginum. Sams konar verkefni hefur verið haldið í Danmörku, Svíþjóð og Noregi um árabil. Markmiðið er að einstaklingar og hópar klæðist sinni uppáhaldstreyju og sýni þannig börnum með krabbamein stuðning.

Í leikjum Bestu deildanna og annarra deilda undanfarna daga hafa leikmenn og dómarar gengið inn á völlinn í alls konar treyjum til að minna á þetta átak. 

Á vefnum Treyjudagur.is er að finna ítarlegri upplýsingar um verkefnið og þar er að auki hægt að ganga alla leið og ganga frá styrk til félagsins. Á vefnum er einnig að finna sögur nokkurra barna sem greinst hafa með krabbamein. „Þegar barn greinist með krabbamein er því ekki bara kippt út úr leiknum. Oft er því kippt út úr lífinu sem það þekkti. Á bak við hverja greiningu er barn og fjölskylda sem stendur frammi fyrir krefjandi og ófyrirsjáanlegum veruleika,“ segir þar meðal annars.
 

Skjáskot af vefnum treyjudagurinn.is þar sem finna má ítarlegri upplýsingar um verkefnið. Smellið á myndina til að fara á treyjuvefinn.
 

Á Íslandi greinist að meðaltali eitt barn í hverjum mánuði með krabbamein. Börn með krabbamein, styrktarfélag, styður börn með krabbamein og fjölskyldur þeirra með fjölbreyttum hætti.

Um félagið

Börn með krabbamein, styrktarfélag var stofnað 1991 til að styðja við bakið á krabbameinsveikum börnum og fjölskyldum þeirra, bæði fjárhagslega og félagslega, og til að berjast fyrir réttindum þeirra gagnvart hinu opinbera. Félagið veitir fjölbreyttan stuðning og stendur að úrræðum sem styðja börn og aðstandendur þeirra meðan á meðferð stendur og eftir hana. Á þeim vettvangi hefur náðst mikill árangur en enn er mikil þörf fyrir ýmiss konar stuðning.