Treyjudagurinn: Stuðningur við Börn með krabbamein

Leikmenn Þórs/KA munu ganga inn á völlinn í leiknum gegn Þrótti á morgun í alls konar fótboltatreyjum, eins og reyndar leikmenn allra annarra liða í Bestu deild kvenna og karla í leikjum sem fram fara dagana 28. ágúst til 1. september. Tilefnið er Treyjudagurinn sem haldinn er 4. september til að vekja athygli á og styrkja félagið Börn með krabbamein.

Treyjudagurinn verður haldinn í fyrsta skipti á Íslandi, en það er styrktarfélagið Börn með krabbamein sem stendur að deginum. Sams konar verkefni hefur verið haldið í Danmörku, Svíþjóð og Noregi um árabil. Markmiðið er að einstaklingar og hópar klæðist sinni uppáhaldstreyju og sýni þannig börnum með krabbamein stuðning. Leikmenn velja sér hins vegar hvaða treyju sem þeim sýnist og mæta til leiks í þeim í leikjum helgarinnar, getur hvort heldur verið treyja landsliðs eða félagsliðs, gömul Þór/KA treyja eða eitthvað allt annað. Búast má við að treyjur evrópskra stórliða verði áberandi, en jafnframt spennandi að sjá fjölbreytnina sem birtast mun á leikjum helgarinnar. Frábært ef einhver myndi að auki taka að sér að fylgjast með öllum leikjum og telja treyjur - sjá hvaða treyja verður notuð af flestum.

KSÍ og ÍTF hafa stutt við styrktarfélagið Börn með krabbamein við undirgúning Treyjudagsins. Stuðningsmenn liða eru því hvattir til að mæta tímanlega á völlinn og verða vitni að þessum óvenjulega viðburði á leikjum helgarinnar. Leikmenn Þórs/KA taka með sér treyjur suður á leikinn gegn Þrótti á morgun og auðvitað væri líka gaman að sjá fólk í stúkunni í alls konar treyjum til að vekja enn meiri athygli á verkefninu.
 
Á vefnum Treyjudagur.is er að finna ítarlegri upplýsingar um verkefnið og þar er að auki hægt að ganga alla leið og ganga frá styrk til félagsins. Á vefnum er einnig að finna sögur nokkurra barna sem greinst hafa með krabbamein. „Þegar barn greinist með krabbamein er því ekki bara kippt út úr leiknum. Oft er því kippt út úr lífinu sem það þekkti. Á bak við hverja greiningu er barn og fjölskylda sem stendur frammi fyrir krefjandi og ófyrirsjáanlegum veruleika,“ segir þar meðal annars.
 
Skjáskot af vefnum treyjudagurinn.is þar sem finna má ítarlegri upplýsingar um verkefnið. Smellið á myndina til að fara á treyjuvefinn.
 

Á Íslandi greinist að meðaltali eitt barn í hverjum mánuði með krabbamein. Börn með krabbamein, styrktarfélag, styður börn með krabbamein og fjölskyldur þeirra með fjölbreyttum hætti.

Um félagið

Börn með krabbamein, styrktarfélag var stofnað 1991 til að styðja við bakið á krabbameinsveikum börnum og fjölskyldum þeirra, bæði fjárhagslega og félagslega, og til að berjast fyrir réttindum þeirra gagnvart hinu opinbera. Félagið veitir fjölbreyttan stuðning og stendur að úrræðum sem styðja börn og aðstandendur þeirra meðan á meðferð stendur og eftir hana. Á þeim vettvangi hefur náðst mikill árangur en enn er mikil þörf fyrir ýmiss konar stuðning.