Tvær frá Þór/KA í EM-hópi U19

Ísfold Marý Sigtryggsdóttir og Jakobína Hjörvarsdóttir.
Ísfold Marý Sigtryggsdóttir og Jakobína Hjörvarsdóttir.

Ísfold Marý Sigtryggsdóttir og Jakobína Hjörvarsdóttir hafa verið valdar í lokahóp U19 landsliðsins fyrir undankeppni EM 2023.

Fram undan er spennandi verkefni hjá stelpunum okkar og U19 landsliðinu, sem er að hefja keppni í undanriðli fyrir EM 2023. Ísland er í riðli með Færeyjum, Litháen og Liechtenstein, en leikið er í Litháen dagana 8.-14. nóvember. Sigurlið riðilsins fer upp í A-keppnina fyrir næsta stig undankeppninnar, sem fram fer í vor, en lokakeppnin sjálf fer fram sumarið 2023. 

Margrét Magnúsdóttir er þjálfari U19 landsliðsins. Hún hefur meðal annars notið aðstoðar Jóns Stefáns Jónssonar, fyrrverandi þjálfara Þórs/KA, í nokkrum verkefnum með liðið.

Þess má geta að tvær til viðbótar frá Þór/KA, þær Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir og Unnur Stefánsdóttir, voru í æfingahópi U19 landsliðsins fyrr í mánuðinum, en voru ekki kallaðar til í lokahópinn að þessu sinni.

U19 hópurinn á vef KSÍ.

Mótið og leikjadagskráin á vef KSÍ.

Landsliðshópurinn: