Tvær frá Þór/KA með U17

Iðunn Rán Gunnarsdóttir og Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir. Útklipptu myndirnar eru úr myndum Þóris Tr…
Iðunn Rán Gunnarsdóttir og Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir. Útklipptu myndirnar eru úr myndum Þóris Tryggva frá leik í Boganum.

Iðunn Rán Gunnarsdóttir og Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir eru í úrtakshópi U17 landsliðsins í lokaundirbúningi fyrir þátttöku í milliriðli á EM.

Liðið býr sig nú undir ferð til Írlands í lok mánaðarins þar sem stelpurnar mæta Írum, Finnum og Slóvökum.

Magnús Örn Helgason, þjálfari U17 landsliðsins, hefur valið 22 leikmenn sem koma saman til æfinga 14.-16. mars.

Upplýsingar um hópinn má finna á vef KSÍ - hér.


Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir í leik gegn Keflavík í Boganum í febrúar. Mynd: Þórir Tryggva.


Iðunn Rán Gunnarsdóttir í harðri baráttu í loftinu í leik gegn Keflavík í Boganum í febrúar. Mynd: Þórir Tryggva.

 

 

.