Tvær valdar fyrir æfingaleiki með U16

Krista Dís Kristinsdóttir og Angela Marý Helgadóttir.
Krista Dís Kristinsdóttir og Angela Marý Helgadóttir.

 

Angela Mary Helgadóttir og Krista Dís Kristinsdóttir eru í leikmannahópi U16 landsliðsins sem mætir Sviss í tveimur æfingaleikjum.

Magnús Örn Helgason, þjálfari U16 landsliðsins hefur valið 20 leikmenn til þátttöku í tveimur æfingaleikjum við Sviss sem fram fara í glænýju húsi, Miðgarði í Garðabæ, miðvikudaginn 23. febrúar og laugardagnn 26. febrúar.

Fram kemur í frétt á vef KSÍ að báðir leikirnir verði sýndir beint á miðlum sambandsins.

Hópinn allan má sjá í frétt á vef KSÍ

 


Angela Mary Helgadóttir í leik með Þór/KA gegn Völsungi í Kjarnafæðismótinu 2022. Mynd: Þórir Tryggva.


Krista Dís Kristinsdóttir í leik með Þór/KA gegn Völsungi í Kjarnafæðismótinu 2022. Mynd: Þórir Tryggva.