Tvær Þór/KA-stelpur eignast barn sama daginn

Byrjunarliðið hjá Þór/KA gegn VfL Wolfsburg á Þórsvellinum 12. september 2018. Ágústa er þriðja frá …
Byrjunarliðið hjá Þór/KA gegn VfL Wolfsburg á Þórsvellinum 12. september 2018. Ágústa er þriðja frá hægri í aftari röð og Sandra María lengst til hægri. Mynd: Páll Jóhannesson/thorsport.is

 

Þær spiluðu Evrópuleiki saman fyrir þremur árum. Í gær, 8. september, eignuðust þær báðar barn með stuttu millibili. 

Þær Ágústa Kristinsdóttir og Sandra María Jessen voru samherjar hjá Þór/KA í mörg ár og meðal annars saman í byrjunarliðinu hjá Þór/KA í leikjum liðsins gegn VfL Wolfsburg í 32ja liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu fyrir þremur árum - 12. og 26. september 2018. Í gærmorgun eignuðust þær báðar barn með stuttu millibili. 

Ágústa Kristinsdóttir, sem líklegt er að hafi lagt keppnisskóna á hilluna, en er reyndar samningsbundin Þór/KA út þetta ár sem leikmaður, og Arnar Geir Halldórsson, yfirþjálfari yngri flokka hjá knattspyrnudeild Þórs, eignuðust son í gærmorgun, sitt annað barn. Fyrir eiga þau Móeiði Ölbu sem er tæplega tveggja ára - fædd nákvæmlega einu ári eftir seinni leikinn gegn Wolfsburg úti í Þýskalandi.

Sandra María Jessen eignaðist á nánast sama tíma sitt fyrsta barn, dóttur, með þýskum unnusta sínum, Tom Kuester, en Sandra María hefur verið á atvinnumannasamningi hjá Bayer Leverkusen í þýsku Bundesligunni frá 2019.

Við óskum Ágústu og Arnari Geir, og Söndru Maríu og Tom innilega til hamingju með börnin.