U15: Fyrstu landsleikir Bríetar Söru og Hörpu Karenar

Bríet Sara Níelsdóttir og Harpa Karen Karlsdóttir spiluðu báðar sína fyrstu landsleiki með U15 landsliði Íslands sem tók þátt í UEFA Developement á Spáni núna í nóvembermánuði.

Íslenska liðið fékk sterka og verðuga mótherja, mætti heimastúlkum Spánverja í fyrsta leik, síðan Belgíu og svo Þýskalandi í síðasta leiknum.

Úrslit leikja:

Þjálfari U15 landsliðsins er Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, en aðstoðarþjálfarar hennar í mótinu voru Caroline van Slambruck og Málfríður Erna Sigurðardóttir.

Þær Bríet Sara og Harpa Karen eru báðar fæddar 2012 og voru því gjaldgengar með 4. flokki sinna félaga síðastliðið sumar. Báðar spiluðu þær einnig með U15 liði (3. flokki) Þórs/KA/VDK sem vann Íslandsmeistaratitil í haust og Bríet Sara spilaði einnig tvo leiki með U20 liði Þórs/KA/Dal/Völ sem vann til silfurverðlauna bæði á Íslandsmóti og í bikarkeppni KSÍ.