Karfan er tóm.
Bríet Sara Níelsdóttir og Harpa Karen Karlsdóttir hafa verið valdar í landsliðshóp U15 sem tekur þátt í UEFA þróunarmóti á Spáni í nóvember.
Þjálfari U15 landsliðsins er Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og hefur hún valið 20 stelpur sem spila fyrir Íslands hönd á mótinu. Íslenska liðið mætir landsliðum Spánar, Belgíu og Þýskalands dagana 10.-14. nóvember.
Þær Bríet Sara og Harpa Karen eru báðar fæddar 2012 og voru því að ljúka veru sinni í 4. flokki sinna félaga í haust og fara upp í sameiginlegt lið í 3. flokki Þórs/KA. Báðar hafa þær reyndar nú þegar komið við sögu með 3. flokki Þórs/KA/VDK og Bríet Sara einnig með U20 (2. flokki) Þórs/KA/Dal/Völ í sumar.
Leikjadagskrá íslenska liðsins:
Hópur U15 kvenna fyrir UEFA Development mót á Spáni - KSÍ
Fyrr í októbermánuði voru þrjár frá KA og Þór valdar í æfingahóp sem kom saman og æfði í Miðgarði í Garðabæ og á Þróttarvelli í Laugardal 15.-17. október. Þar voru þær báðar, Bríet Sara og Harpa Karen, ásamt Tinnu Margréti Axelsdóttur.
Æfingahópurinn fyrr í októbermánuði: Æfingahópur U-15 kvenna - KSÍ