U15 landslið: Emma Júlía í hóp sem fer til Englands

Emma Júlía Cariglia úr Þór/KA hefur verið valin í landsliðshóp U15 sem tekur þátt í UEFA Development Torunament á Englandi 20.-26. nóvember. 

Aldís Ylfa Heimisdóttir, þjálfari U15 landsliðs kvenna, hefur valið 20 leikmenn í hóp fyrir þátttöku á UEFA Development móti í Englandi. Þeirra á meðal er Emma Júlía Cariglia úr Þór/KA.

Áður hafði Aldís Ylfa valið 35 leikmenn sem komu saman til æfinga í lok október og hefur nú valið 20 úr þeim hópi. Sjá má hópinn allan í frétt á vef KSÍ: