U16: Þrenna, tvenna og sigur gegn KF/Dalvík

Sóley Eva Guðjónsdóttir skoraði þrennu og Marsibil Stefánsdóttir tvö mörk sigri Þórs/KA2 í Íslandsmóti 3. flokks, C-riðli, lotu 1, þegar liðið vann 5-1 sigur gegn KF/Dalvík í dag. 

Þetta var fimmti leikur liðsins í riðlinum og hafa stelpurnar nú unnið fjóra leiki í röð eftir tap í þeim fyrsta. Liðið er í efsta sæti með 12 stig, en önnur lið hafa aðeins leikið 1-3 leiki þannig að staðan er óljós og ýmislegt sem á eftir að gerast. Sóley Eva hefur skorað sjö mörk í þessum fimm leikjum.

KF/Dalvík - Þór/KA2 1-5 (1-2)

  • 1-0 Hildur Inga Pálsdóttir (12').
  • 1-1 Sóley Eva Guðjónsdóttir (20').
  • 1-2 Sóley Eva Guðjónsdóttir (31').
  • 1-3 Sóley Eva Guðjónsdóttir (45')
  • 1-4 Marsibil Stefánsdóttir (56').
  • 1-5 Marsibil Stefánsdóttir (72').
  • Leiksýrslan (ksi.is)