Karfan er tóm.
Nú líður að lokum tímabilsins hjá U16 liðunum okkar. Öll eiga heimaleik í dag og tvö af þremur liðum klára sína leiki í dag, Íslandsmeistaratitill í húfi hjá öðru þeirra. Þriðja liðið klárar sína leiki um næstu helgi.
Hér að neðan má sjá yfirlit um árangur liðanna í sumar. A1 og A2 liðin spiluðu í lotukerfinu þar sem eru 5-8 lið í hverri deild og færast á milli deilda eftir árangri í hverri lotu. A1 spilaði í A-deild í öllum þremur lotunum og A2 liðið í C-deildinni. Þriðja liðið sem félagið teflir fram er í keppni B-liða og spilar þar í A-deild. Hægt er að fara beint inn á upplýsingar um hverja deild og lotu með því að smella á nöfn deildanna.
Þór/KA/VDK tekur á móti Val/KH á Þórsvellinum í dag kl. 14. Með sigri eða jafntefli tryggir liðið sér Íslandsmeistaratitil í 3. flokki, en tapi liðið gæti það engu að síður unnið titilinn eftir því hvernig úrslit annarra leikja verða.
Félagið tefldi fram tveimur A-liðum og spilaði Þór/KA/VDK-2 í C-deildinni. A2 liðið á þremur leikjum ólokið. Liðið tekur á móti Aftureldingu í dag kl. 11 í fyrsta leik dagsins.
Samtals eiga U16 liðin eftir að leika fimm leiki áður en tímabilinu lýkur. A1 og B liðin klára sína leiki í dag, en A2 spilar tvo leiki um næstu helgi.

