U16: Tvær þrennur, tveir sigrar, sex stig!

Innlit í Skessuna, tveir sigrar í gær og  fyrradag, tvær með þrennu og sex stig heim. Þór/KA2 í 3. flokki heimsótti suðvesturhornið um helgina.

Þór/KA2 liðið okkar í 3. flokki spilar fyrstu lotuna í Íslandsmótinu í C-riðli. Eftir tapleik á Húsavík í síðustu viku var ekkert gefið eftir í suðurferðinni um helgina. Fyrst sigur á Haukum/KA á BIRTU-vellinum síðsdegis á laugardag, eftir að hafa fylgst með hluta leiks Þórs/KA og FH í Skessunni fyrr um daginn, og svo sigur á Fram/ÍR í gær. Arney Elva Valgeirsdóttir og Sóley Eva Guðjónsdóttir koma heim með þrennu í vasanum. Arney Elva skoraði þrjú gegn Haukum/KÁ á laugardaginn og Sóley Eva þrjú gegn Fram/ÍR í gær.

Þór/KA2 er því með sex stig eftir þrjá leiki og er í efsta sæti riðilsins.

Haukar/KÁ - Þór/KA2 0-6 (0-2)

  • 0-1 Arney Elva Valgeirsdóttir (30')
  • 0-2 Arney Elva Valgeirsdóttir (38')
    - - -
  • 0-3 Auðbjörg Eva Häsler (52')
  • 0-4 Marsibil Stefánsdóttir (60')
  • 0-5 Marsibil Stefánsdóttir (65')
  • 0-6 Arney Elva Valgeirsdóttir (80')
  • Leikskýrslan (ksi.is)

Fram/ÍR - Þór/KA2 2-7 (1-4)

  • 1-0 Arney Stella Bryngeirsdóttir (4').
  • 1-1 Kristín Emma Hlynsdóttir (9').
  • 1-2 Sóley Eva Guðjónsdóttir (13').
  • 1-3 Sóley Eva Guðjónsdóttir (37').
  • 1-4 Þórey Lea Hermannsdóttir (40').
    - - -
  • 1-5 Sóley Eva Guðjónsdóttir (58').
  • 2-5 Sandra Dís Hlynsdóttir (60').
  • 2-6 Diljá Blöndal Sigurðardóttir (68').
  • 2-7 Inga Sóley Jónsdóttir (74').
  • Leikskýrslan (ksi.is)