U17: 16 stelpur frá Þór/KA á Norðurlandsæfingu

Fimmtudaginn 12. febrúar verður Margrét Magnúsdóttir, þjálfari U17 landsliðs kvenna, með æfingu í Boganum. Tuttugu stelpum (2009-2010) hefur verið boðið á æfinguna, þar af 16 frá Þór/KA. 

Alls hefur 20 stelpum af Norðurlandi sem fæddar eru 2009 og 2010 verið boðið á U17 æfinguna sem verður í Boganum að morgni fimmtudagsins 12. febrúar. Auk þeirra 16 frá Þór/KA sem taldar eru upp hér að neðan eru þrjár frá Völsungi, Auður Ósk Kristjánsdóttir, Ísabella Anna Kjartansdóttir og Guðrún Helga Geirsdóttir, og ein frá Tindastóli, Hrafney Lea Árnadóttir.