Karfan er tóm.
Birgitta Rún Finnbogadóttir og Karen Hulda Hrafnsdóttir voru valdar í æfingahóp U19 landsliðsins, en æfingar liðsins standa yfir þessa dagana.
Nýr landsliðsþjálfari U19, Caroline Van Slambrouck valdi 33 leikmenn sem komu saman til æfinga í Miðgarði í Garðabæ í gær, en æfingar hópsins standa 4.-6. nóvember. Þar á meðal eru tvær úr Þór/KA, Birgitta Rún og Karen Hulda. Birgitta á að baki 12 landsleiki með yngri landsliðum, sex með U18 og sex leiki og eitt mark með U19. Karen Hulda hefur áður verið á landsliðsæfingum og með yngri landsliðum, en hefur ekki komið við sögu í landsleikjum.
Æfingarnar eru liður í undirbúningi fyrir þátttöku liðsins í undankeppni Evrópumótsins 2027. U19 landsliðið spilar í undanriðli fyrir EM 2027 í lok nóvember og byrjun desember. Mótherjarnir eru Króatía, Belgía og Frakkland. Leikið er á tveimur stöðum í Króatíu, Stadion Branko Čavlović-Čavlek í Kavlovac skammt frá Zagreb og Sportski Centar Rudeší Zagreb .
Leikirnir í riðlinum: