Karfan er tóm.
U19 landsliðið vann Dani í öðrum leik sínum í öðrum leik liðsins í 2. umferð undankeppni EM. Lokatölur urðu 3-2. Elísa Bríet Björnsdóttir var á varamannabekknum, en kom inn á í fyrri hálfleiknum, eftir 28 mínútna leik.
Ísland er í efsta sæti riðilsins með fjögur stig eftir fyrstu tvo leikina, jafn mörg stig og Finnland, sama markamun, en með fleiri skoruðmörk. Ísland og Finnland gerðu 1-1 jafntefli í fyrsta leiknum.
Það verður því spennandi að fylgjast með liðinu í leik gegn gestgjöfunum, Serbum, á miðvikudaginn, þar sem íslenska liðið fær tækifæri til að tryggja sér sæti í lokakeppni mótsins sem fram fer í Bosníu-Herzegovínu í sumar. Þar mætast átta lið, sigurliðin úr riðlunum sjö ásamt gestgjöfunum.
Upplýsingar um leikinn á vef UEFA - sjá hér.
Íslenska liðið þarf að vinna leikinn gegn Serbíu. Ef Finnar vinna Dani þarf íslenska liðið einfaldlega að vinna Serbíu með meiri (eða jafn miklum) mun og Finnar vinna Dani.


