U20: Svona var 2026

Fyrir leik gegn Breiðabliki/Augnabliki í Kópavoginum.

- - -
Fyrir leik gegn Breiðabliki/Augnabliki í Kópavoginum.

- - -

Þór/KA tefldi fram einu liði í Íslandsmóti og bikarkeppni U20 (2. flokkur) í samvinnu við Völsung og Dalvík undir heitinu Þór/KA/Dalv/Völ. Liðið vann til silfurverðlauna í báðum mótunum.

Flestar af þeim sem spiluðu leikina með U20 liðinu spiluðu einnig með meistaraflokki Þórs/KA, Völsungs eða Dalvíkur/Reynis, en einnig spiluðu nokkrar yngri einnig með liðinu, úr 3. flokki félagsins og sú yngsta, Bríet Sara Níelsdóttir, úr 4. flokki.

Sumar suðurferðirnar reyndist erfitt að manna vegna annarra verkefna hjá leikmönnum. Ein helgin var sérstaklega erfið enda komu þar tveir af þremur tapleikjum liðsins í A-deildinni. Liðið mætti þá Þrótti/KÞ á föstudagskvöldi og FH á laugardegi, en í hópnum voru nokkrar sem höfðu verið á landsliðsæfingum fyrr í vikunni, síðan spilað tvo leiki með 3. flokki og voru svo mættar í leiki með U20 liðinu. Segja má að þarna hafi ekki skort verkefnin, en óheppileg niðurröðun leikja ekki kjörstaða upp á álag á leikmenn að gera. Því miður fékk liðið svo reyndar ekki að spila alla leikina því eins og flest undanfarin ár endaði tímabilið á því að lið af sunnanverðu landinu gaf leik í stað þess að koma norður.

Jón Stefán Jónsson stýrði liðinu framan af sumri, en síðan tók Ágústa Kristinsdóttir við. Jóhann Hreiðarsson og Aðalsteinn Jóhann Friðriksson komu einnig við sögu í hluta leikjanna.

Þór/KA hefur teflt fram sameiginlegu liði í 2. flokki frá 2006, ýmist eingöngu undir heitinu Þór/KA eða í samstarfi við önnur félög á Norðurlandi og unnið til fjölmargra titla. Nánar verður farið yfir árangur og sögu 2. flokks félagsins í sér umfjöllun.

Stelpurnar tóku þátt í treyjudeginum í byrjun september ásamt Selfyssingum þegar liðin mættust á Akureyri.

- - -

  • Íslandsmót A-deild

    2. sæti 
    14 leikir – 29 stig
    9 sigrar – 2 jafntefli – 3 töp
    Mörk: 65-24
    38 leikmenn
    Markaskorarar
    9 – Birgitta Rún Finnbogadóttir
    6 – Ísey Ragnarsdóttir
    5 – Aníta Ingvarsdóttir, Bríet Fjóla Bjarnadóttir, Hafdís Nína Elmarsdóttir
    4 – Auðbjörg Eva Häsler, Eva S. Dolina-Sokolowska, Hildur Anna Birgisdóttir
    3 – Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir, Halla Bríet Kristjánsdóttir
    2 – Embla Mist Steingrímsdóttir, Emma Júlía Cariglia, Júlía Karen Magnúsdóttir
    1 – Bríet Sara Níelsdóttir, Emelía Ósk Krüger, Erla Þyrí Brynjarsdóttir, Karen Hulda Hrafnsdóttir, Kolfinna Eik Elínardóttir, Ragnheiður Sara Steindórsdóttir, Þóra Margrét Guðmundsdóttir

  • Bikarkeppni

    2. sæti
    4 leikir
    3 sigrar – 1 tap
    Mörk: 14-16
    24 leikmenn
    Markaskorarar:
    4 – Halla Bríet Kristjánsdóttir
    2
    – Birgitta Rún Finnbogadóttir
    1 – Amalía Árnadóttir, Bríet Fjóla Bjarnadóttir, Ellý Sveinbjörg Elvarsdóttir, Embla Mist Steingrímsdóttir, Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir, Eva S. Dolina-Sokolowska, Ísey Ragnarsdóttir

Leikmenn Íslandsmót Bikarkeppni Samtals
  Leikir Mörk Leikir Mörk Leikir Mörk

Agnes Birta Stefánsdóttir

2 0     2 0

Amalía Árnadóttir

7 5 2 1 9 6

Aníta Ingvarsdóttir

    4 0 4 0

Arna Lind Jóhannsdóttir

2 0     2 0

Arney Elva Valgeirsdóttir

1 0 1 0 2 0

Ásta Ninna Reynisdóttir

9 0 1 0 10 0

Auðbjörg Eva Hasler

12 4 4 0 16 4

Birgitta Rún Finnbogadóttir

4 9 3 2 7 11

Bríet Fjóla Bjarnadóttir

3 5 2 1 5 6

Bríet Kolbrún Hinriksdóttir

8 0 4 0 12 0

Bríet Sara Níelsdóttir

2 1     2 1

Diljá Blöndal Sigurðardóttir

12 0 4 0 16 0

Dóra Jensína Þorgilsdóttir

3 0     3 0

Ellý Sveinbjörg Elvarsdóttir

10 0 4 1 14 1

Embla Mist Steingrímsdóttir

13 2 4 1 17 3

Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir

13 3 4 1 17 4

Emelía Ósk Kruger

2 1     2 1

Emma Júlía Cariglia

8 2 1 0 9 2

Erla Þyri Brynjarsdóttir

2 1     2 1

Eva S.Dolina-Sokolowska

6 4 3 1 9 5

Guðrún Lára Atladóttir

3 0     3 0

Hafdís Nína Elmarsdóttir

10 5     10 5

Halla Bríet Kristjánsdóttir

6 3 2 4 8 7

Halldóra Ósk Gunnlaugsd. Briem

4 0     4 0

Harpa Jóhannsdóttir

1 0     1 0

Hildur Anna Birgisdóttir

4 4     4 4

Hrafnhildur Barkardóttir

2 0     2 0

Ísey Ragnarsdóttir

7 6 3 1 10 7

Jóhanna Heiður Kristjánsdóttir

3 0     3 0

Júlía Karen Magnúsdóttir

13 2 4 0 17 2

Karen Hulda Hrafnsdóttir

5 1 1 0 6 1

Karen Linda Sigmarsdóttir

3 0 1 0 4 0

Kolfinna Eik Elínardóttir

6 1 2 0 8 1

Manda María Jóhannsdóttir

3 0     3 0

Móeiður Alma Gísladóttir

2 0 1 0 3 0

París Hólm Jónsdóttir

2 0     2 0

Ragnheiður Sara Steindórsdóttir

3 1 4 0 7 1

Sigyn Elmarsdóttir

4 0     4 0

Þóra Margrét Guðmundsdóttir

1 1     1 1

- ef smellt er á nöfn leikmanna opnast síða viðkomandi leikmanns á vef KSÍ með upplýsingum um feril viðkomandi.

Fyrir leik gegn Val/KH að Hlíðarenda 1. maí. Jóhann Hreiðarsson sem stýrði liðinu í þeim leik leggur línurnar áður en leikur hefst.

Byrjunarlið gegn Haukum í Hafnarfirði 27. júní. Aftari röð frá vinstri: Bríet Fjóla Bjarnadóttir, Birgitta Rún Finnbogadóttir, Embla Mist Steingrímsdóttir, Bríet Kolbrún Hinriksdóttir, Hildur Anna Birgisdóttir og Aníta Ingvarsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Auðbjörg Eva Häsler, Diljá Blöndal Sigurðardóttir, Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir, Júl´lia Karen Magnúsdóttir og Ellý Sveinbjörg Elvarsdóttir.

Hópurinn fyrir leik gegn ÍA/Skallagrími í Akraneshöllinni í átta liða úrslitum bikarkeppni U10. Aftari röð frá vinstri: Birgitta Rún Finnbogadóttir, Embla Mist Steingrímsdóttir, Bríet Fjóla Bjarnadóttir, Bríet Kolbrún Hinriksdóttir, Ragnheiður Sara Steindórsdóttir, Ellý Sveinbjörg Elvarsdóttir og Arney Elva Valgeirsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Ásta Ninna Reynisdóttir, Aníta Ingvarsdóttir, Auðbjörg Eva Häsler, Júlía Karen Magnúsdóttir, Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir og Diljá Blöndal Sigurðardóttir.

Hópurinn í leik gegn Breiðabliki/Augnabliki í Smáranum í Kópavogi 23. ágúst. Aftari röð frá vinstri: Halldóra Ósk Gunnlaugsdóttir Briem, Embla Mist Steingrímsdóttir, Eva S. Dolina-Sokolowska, Ásta Ninna Reynisdóttir, Bríet Kolbrún Hinriksdóttir, Hafdís Nína Elmarsdóttir, Ellý Sveinbjörg Elvarsdóttir, Karen Linda Sigmarsdóttir og Jóhanna Heiður Kristjánsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Bríet Sara Níelsdóttir, Emma Júlía Cariglia, Diljá Blöndal Sigurðardóttir, Júlía Karen Magnúsdóttir, Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir, Auðbjörg Eva Häsler og Halla Bríet Kristjánsdóttir. 

Treyjudagur! Hópurinn gegn Selfossi 4. september. Aftari röð frá vinstri: Erla Þyri Brynjarsdóttir, Emma Júlía Cariglia, Hafdís Nína Elmarsdóttir, Embla Mist Steingrímsdóttir, Halla Bríet Kristjánsdóttir, Bríet Kolbrún Hinriksdóttir, Eva S. Dolina-Sokolowska, Ellý Sveinbjörg Elvarsdóttir og Móeiður Alma Gísladóttir. Fremri röð frá vinstri: Júlía Karen Magnúsdóttir, Kolfinna Eik Elínardóttir, Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir, Birgitta Rún Finnbogadóttir, Auðbjörg Eva Häsler og Diljá Blöndal Sigurðardóttir. 

Byrjunarliðið í undanúrslitum bikarkeppni U20 gegn Breiðabliki 20. september. Aftari röð frá vinstri: Birgitta Rún Finnbogadóttir, Ragnheiður Sara Steindórsdóttir, Amalía Árnaadóttir, Bríet Kolbrún Hinriksdóttir, Ísey Ragnarsdóttir og Halla Bríet Kristjánsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Eva S. Dolina-Sokolowska, Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir, Embla Mist Steingrímsdóttir, Kolfinna Eik Elínardóttir og Ellý Sveinbjörg Elvarsdóttir. 

Byrjunarliðið í úrslitaleik bikarkeppni U20 gegn FH á Kaplakrikavelli. Aftari röð frá vinstri: Bríet Kolbrún Hinriksdóttir, Halla Bríet Kristjánsdóttir, Ísey Ragnarsdóttir, Amalía Árnadóttir, Karen Hulda Hrafnsdóttir og Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Ellý Sveinbjörg Elvarsdóttir, Kolfinna Eik Elínardóttir, Birgitta Rún Finnbogadóttir, Ragnheiður Sara Steindórsdóttir og Emma Júlía Cariglia.