Karfan er tóm.
Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir hefur verið kölluð inn í leikmannahóp U23 landsliðsins sem mætir Skotlandi í tveimur æfingaleikjum á næstunni.
Æfingaleikirnir við Skota verða í Falkirk í Skotlandi, sem er rétt norðan við og á milli Glasgow og Edingborgar. Fyrri leikurinn verður fimmtudaginn 29. maí og sá seinni mánudaginn 2. júní. Báðir leikirnir hefjast kl. 14.
Kimberley Dóra var upphaflega ekki valin í þennan hóp, sem kom mörgum á óvart, en var hins vegar kölluð inn í hópinn eftir að Arna Eiríksdóttir, sem lék með Þór/KA á lánssamningi frá Val sumarið 2022, var kölluð inn í A-landsliðið og gat þar með ekki verið með U23 landsliðinu. Kimberley Dóra hefur nú þegar mikla reynslu að baki með yngri landsliðum Íslands, samtals 18 leiki með U19, U18, U17 og U16, en er nú í fyrsta skipti í hóp með U23 landsliðinu.
Hér má sjá upphaflega hópinn sem valinn var í þetta verkefni U23 landsliðsins.