Úrslitaleikurinn á Þórsvelli

 

Úrslitaleikur Íslandsmóts B-liða í 3. flokki kvenna verður á Þórsvellinum laugardaginn 18. september kl. 15.

B-lið Þórs/KA/Hamranna tryggði sér sæti í úrslitaleiknum með 1-0 sigri á Víkingum á Blönduósvelli á mánudaginn. Í hinum undanúrslitaleiknum vann HK 2-1 sigur á Val/KH. Það verða því Þór/KA/Hamrarnir og HK sem mætast í úrslitaleik.

Samkomulag hefur náðst um að leikurinn verði spilaður á Þórsvellinum laugardaginn 18. september kl. 15. Leiknum verður streymt beint á Þór TV.

Hér verður hægt að opna leikinn til að horfa í beinni.

Útsendingin er í boði Striksins og færum við þeim bestu þakkir fyrir stuðningin við liðin okkar í 3. flokki.