Verðskuldaður sigur og eftirminnileg augnablik

Einlægur fögnuður eftir að Una Móeiður Hlynsdóttir skoraði þriðja markið í uppbótartíma leiksins. My…
Einlægur fögnuður eftir að Una Móeiður Hlynsdóttir skoraði þriðja markið í uppbótartíma leiksins. Mynd: Egill Bjarni Friðjónsson.
- - -

Þór/KA vann Breiðablik í opnum og fjörugum markaleik í 2. umferð efri hluta Bestu deildar kvenna í knattspyrnu í gær. Bríet Fjóla Bjarnadóttir kom í fyrsta skipti við sögu í leik í efstu deild þegar hún kom inn á sem varamaður, en hún er fædd 2010.

Þrátt fyrir kröftuga byrjun og opin færi var aðeins eitt mark skorað í fyrri hálfleiknum og það kom á loka mínútu hans þegar Karen María Sigurgeirsdóttir átti fallegan skalla eftir fyrirgjöf frá Huldu Ósk Jónsdóttur. Þór/KA fylgdi þessu marki svo eftir strax eftir leikhléið þegar Sandra María Jessen skoraði eftir fyrirgjöf Margrétar Árnadóttur.

Gestirnir náðu að minnka muninn úr vítaspyrnu skömmu síðar og jafna leikinn þegar rúmar tíu mínútur voru eftir. Jafntefli hefðu raunar verið mjög ósanngjörn úrslit miðað við gang leiksins og fjölda færa, en það er ekki alltaf spurt að því.


Karen María Sigurgeirsdóttir skoraði eina mark fyrri hálfleiksins með nettum skalla. Mynd: Egill Bjarni Friðjónsson. 

Þrátt fyrir að stutt væri eftir gáfust okkar stelpur ekki upp heldur héldu áfram að sækja og vildu sigur - og fengu hann. Á fyrstu mínútu uppbótartíma skoraði Una Móeiður Hlynsdóttir af stuttu færi eftir sendingu frá Amalíu Árnadóttur.

  • 1-0 - Karen María Sigurgeirsdóttir (45’). Stoðsending: Hulda Ósk Jónsdóttir.
  • 2-0 - Sandra María Jessen (49’). Stoðsending: Margrét Árnadóttir.
  • 2-1 - Agla María Albertsdóttir (54’)(v).
  • 2-2 - Agla María Albertsdóttir (77’)
  • 3-2 - Una Móeiður Hlynsdóttir (90+1’)

Með sigrinum færðist Þór/KA upp um eitt sæti og situr nú í 5. Sætinu með 29 stig úr 20 leikjum. Breiðablik var eina liðið sem tölfræðilega hefði getað náð Val að stigum, en hefði þá þurft að sigra í gær. Úrslitin þýddu því að Valur er Íslandsmeistari þriðja árið í röð.

Keppnin um 2. sætið í deildinni, sem gefur þátttökurétt í undankeppni Meistaradeildar Evrópu, varð um leið meira spennandi og eiga öll liðin möguleika á því sæti. Breiðablik og Þróttur eru með 34 stig, Stjarnan 32 (á leik inni gegn Val í dag), Þór/KA með 29 og FH með 28.

Þór/KA mætir Þrótti á útivelli sunnudaginn 17. september kl. 14. Að þeim leik loknum verður hlé á deildinni vegna landsleikja, en eftir það á Þór/KA heimaleik gegn Stjörnunni (30.09.) og útileik gegn FH (06.10.)

Höfðingleg gjöf

Í leikhléi tók Dóra Sif Sigtryggsdóttir, formaður stjórnar Þórs/KA, við ávísun að upphæð 750.000 krónur úr Minningarsjóði Guðmundar Sigurbjörnssonar, fyrrverandi formanns Þórs, en það voru synir Guðmundar, þeir Bjarni Freyr og Einar Már, sem afhentu styrkinn. Virkilega fallegt og gott framtak hjá þeim bræðrum og Minningarsjóðnum.

Þór/KA þakkar framlag Minningarsjóðsins af heilum hug.


Dóra Sif Sigtryggsdóttir, Bjarni Freyr Guðmundsson og Einar Már Guðmundsson. Mynd: Egill Bjarni Friðjónsson.

Til að kóróna daginn kom hin 13 ára Bríet Fjóla Bjarnadóttir, sonardóttir Guðmundar, inn á í sínum fyrsta leik í efstu deild.


Bríet Fjóla Bjarnadóttir að leik loknum í gær. Mynd: Haraldur Ingólfsson.

Reyndar munaði litlu að hún hefði komið inn á í leik fyrr í sumar, var þá tilbúin í innáskiptingu, en leiktíminn rann út án þess að stopp kæmi í leikinn og því fór hún ekki inn á í það skiptið. Bríet Fjóla er langyngsti leikmaðurinn sem komið hefur við sögu í leikjum Bestu deildarinnar í sumar.

Söfnun í nafni Violetu Mitul

Félagið stóð fyrir söfnun á meðal gesta á leiknum til styrktar fjölskyldu Violetu Mitul, leikmanns Einherja sem lést af slysförum 4. september. Gestir á leiknum tóku því framtaki vel og erum við þakklát þeim sem lögðu þeirri söfnun lið með beinum hætti á leiknum eða með því að millifæra sjálf.

Upphæðinni sem safnaðist í gær verður komið á söfnunarreikning Einherja.