Vigdís Edda Friðriksdóttir í Þór/KA

Vigdís Edda Friðriksdóttir semur við Þór/KA til tveggja ára. Myndin er tekin að Ásvöllum í dag, fyri…
Vigdís Edda Friðriksdóttir semur við Þór/KA til tveggja ára. Myndin er tekin að Ásvöllum í dag, fyrir leik Þórs/KA gegn Haukum í Faxaflóamótinu.

 

Miðjumaðurinn Vigdís Edda Friðriksdóttir (1999) er á leið í Þór/KA, en hún hefur undanfarin tvö tímabil verið hjá Breiðabliki. Vigdís Edda skrifar undir tveggja ára samning við Þór/KA.

Vigdís Edda á að baki 133 leiki (34 mörk) í meistaraflokki með Tindastóli og Breiðabliki.

Vigdís Edda hóf ferilinn hjá Tindastóli, en þar spilaði hún sína fyrstu meistaraflokksleiki 2015. Hún spilaði 88 leiki með Tindastóli fram til ársins 2019, en skipti síðan í Breiðablik fyrir tímabilið 2020. Hjá Breiðabliki kom hún við sögu í 29 leikjum í deild og bikar, auk sex leikja í Meistaradeild Evrópu síðastliðið sumar og haust.

Mun falla vel í hópinn hjá Þór/KA

Ljóst er að Vigdís Edda mun styrkja hópinn og auka breiddina í leikmannavali liðsins. Perry Mclachlan og Jón Stefán Jónsson, þjálfarar liðsins, eru ánægðir með að ná Vigdísi Eddu norður.

„Frábær viðbót við hópinn!“ sagði Perry Mclachlan í samtali við heimasíðuna. „Ég er virkilega spenntur að vinna með henni. Við þekkjum gæði hennar og hvað hún getur komið með inn í liðið. Hún mun passa fullkomlega hér hjá Þór/KA,“ segir Perry.

Jón Stefán tekur í sama streng: „Ég er gífurlega ánægður með að fá Vigdísi í Þór/KA. Við þekkjumst vel frá því ég þjálfaði hana í Tindastóli og þarna fer stelpa sem getur náð ofboðslega langt og styrkir okkar hóp mikið. Hún mun smellpassa í hópinn okkar bæði sem leikmaður og karakter. Svo ég tali nú ekki um hve vel hún hentar í leikstíl liðsins,“ segir Jón Stefán.