Karfan er tóm.
Margrét Magnúsdóttir hefur valið tvo æfingahópa sem koma saman til æfinga í Miðgarði í Garðabæ 18.-20. nóvember, U16 og U17 landsliðshópa.
Alls eru fimm ungar knattspyrnukonur sem komu við sögu með U16 liði Þórs/KA/VDK sem vann Íslandsmeistaratitil í 3. flokki í lok september í þeim æfingahópum sem Margrét hefur valið. Þrjár koma frá Akureyrarfélögunum og tvær úr Völsungi.
Auk áðurnefndra fimm knattspyrnukvenna er Bríet Fjóla Bjarnadóttir, fyrrum leikmaður Þórs/KA, einnig í U17 landsliðshópnum.
Emma Júlía kom í fyrsta sinn við sögu í Bestu deildinni í sumar þegar hún kom inn á í útileik Þórs/KA gegn Breiðabliki. Ásta Ninna og Hafdís voru báðar á leikskýrslu með liðinu í sumar, en komu ekki við sögu í leikjum liðsins. Auður Ósk og Ísabella Anna eiga báðar að baki tugi meistaraflokksleikja með Völsungi.

Fimm af þeim ungu knattspyrnukonum úr Akureyrarfélögunum og Völsungi sem eru á leið á æfingar með U16 og U17 landsliðum Íslands síðar í mánuðinum spiluðu lokaleik Þórs/KA/VDK í Íslandsmótinu í lok september þegar liðið tryggði sér Íslandsmeistaratitil U16 (3. flokkur). Frá vinstri: Ísabella Anna Kjartansdóttir, Hafdís Nína Elmarsdóttir, Ásta Ninna Reynisdóttir, Emma Júlía Cariglia og Auður Ósk Kristjánsdóttir. Þær Ísabella og Auður eru í Völsungi og komu við sögu með U16 liði Þórs/KA/VDK í nokkrum leikjum í sumar, þar á meðal á lokasprettinum. Myndir: Sævar Geir Sigurjónsson.

Hafdís Nína Elmarsdóttir úr Þór/KA og Ísabella Anna Kjartansdóttir úr Völsungi í lokaleik U16 liðs Þórs/KA/VDK í Íslandsmótinu í lok september þegar liðið tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn. Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson.

Auður Ósk Kristjánsdóttir úr Völsungi í baráttu við Valsstelpu í áðurnefndum leik. Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson.

Emma Júlía Cariglia í áðurnefndum leik með Þór/KA/VDK. Fjær er Hafdís Nína Elmarsdóttir. Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson.

Ásta Ninna Reynisdóttir, fyrirliði A1 liðs Þórs/KA/VDK í 3. flokki, lyftir Íslandsmeistarabikarnum eftir sigur á Val í lokaleik liðsins 28. september. Mynd. Sævar Geir Sigurjónsson.