Karfan er tóm.
Sandra María Jessen og María Catharina Ólafsdóttir Gros eru báðar A-landsliðshópnum sem valinn hefur verið fyrir tvo leiki Íslands í undankeppni HM í apríl.
Sandra María á nú þegar að baki 61 landsleik, en María Catharina kom í fyrsta skipti við sögu í leik með A-landsliðinu í fyrstu tveimur leikjum liðsins í riðlinum fyrr á árinu, útileikjum gegn Spáni og Englandi. María var einnig í landsliðshópnum í verkefnum síðastliðið haust, en kom ekki við sögu í leikjunum.
Leikir Íslands eru liðir í undankeppni HM 2027, sem fram fer í Brasilíu. Báðir leikirnir í þessum glugga eru á Laugardalsvellinum.
Miðasala á leikinn gegn Úkraínu hefst þriðjudaginn 31. mars og fyrir leikinn gegn Englandi miðvikudaginn 1. apríl. Þegar miðar eru keyptir á leiki liðsins geta kaupendur valið að styrkja sitt félagslið í leiðinni og renna þá 20% af andvirði viðkomandi miða til þess félags sem kaupandinn velur - sjá nánar í frétt okkar um miðasöluna.