Arna Sif með þrenn verðlaun - Karen Hulda efnilegust

Arna Sif Ágrímsdóttir og Karen Hulda Hrafnsdóttir með verðlaunagripina á lokahófi Þórs/KA í gærkvöld…
Arna Sif Ágrímsdóttir og Karen Hulda Hrafnsdóttir með verðlaunagripina á lokahófi Þórs/KA í gærkvöld. Myndir með fréttinni: Ármann Hinrik.

- - -

Arna Sif Ásgrímsdóttir var hlaðin verðlaunum á lokahófi Þórs/KA sem fram fór í gærkvöld, valin besti leikmaðurinn, leikmaður leikmannanna og hlaut Kollubikarinn. Miðvarðaparið sem varð til snemma móts hirti verðlaun kvöldsins því Karen Hulda Hrafnsdóttir var valin efnilegust. 

  • Besti leikmaður: Arna Sif Ásgrímsdóttir
  • Leikmaður leikmannanna: Arna Sif Ásgrímsdóttir
  • Efnilegasti leikmaður: Karen Hulda Hrafnsdóttir
  • Kollubikarinn: Arna Sif Ásgrímsdóttir

Arna Sif Ásgrímsdóttir - Klisjan eins og klettur í vörninni gæti hafa orðið til þegar Arna Sif Ásgrímsdóttir byrjaði í boltanum. Þessi frasi var að minnsta kosti mjög oft notaður í lýsingum og uppgjöri leikja Þórs/KA í Bestu deildinni í sumar. Arna Sif kom til félagsins frá Val síðastliðið haust og var þá nýbyrjuð aftur eftir langt hlé vegna meiðsla og barnsburðarleyfis. Þrátt fyrir að byrja tímabilið meidd og spila nánast alltaf eitthvað meidd var Arna Sif einmitt það sem oft er sagt, eins og klettur í vörn Þórs/KA. Hún spilaði alla leiki liðsins í Bestu deildinni og þrjá af fimm í Lengjubikarnum. Hún var á lokahófi félagsins í gær valin besti leikmaður liðsins og að auki valin af liðsfélögum sínum sem leikmaður leimannanna. Þriðju verðlaunin sem hún hlaut í gærkvöld voru svo Kollubikarinn, en nánar er fjallað um hann í sér frétt þar sem er meðal annars góð lýsing á Örnu Sif og einkennum hennar sem gera hana að okkar bestu - sjá hér. 

Arna Sif hlaðin verðlaunum á lokahófi Þórs/KA í gærkvöld. Gefandi verðlaunagripa er JB úr & skart á Akureyri. Mynd: Ármann Hinrik

Arna Sif á að baki 218 leiki í efstu deild með Þór/KA og er komin upp í 4. sætið yfir þær knattspyrnukonur sem hafa spilað flesta leiki í efstu deild fyrir sama félag. Samanlagt á hún að baki 317 leiki í efstu deild á Íslandi, Ítalíu og í Svíþjóð; 218 fyrir Þór/KA, 111 fyrir Val, 19 fyrir Göteborgs/Kopparberg í Svíþjóð og fimm með Verona á Ítalíu. Hún hefur samanlagt spilað 447 meistaraflokksleiki í deildakeppnum í þremur löndum, deildabikarkeppni, bikarkeppni, meistarakeppni og Evrópukeppnum. Fyrsta meistaraflokksleikinn fyrir Þór/KA spilaði Arna Sif í mars 2007, þá 14 ára og 217 daga gömul. 

Karen Hulda Hrafnsdóttir - Eftir að Hulda Björg Hannesdóttir, fyrirliði Þórs/KA, varð fyrir meiðslum í öðrum leik liðsins á tímabilinu kom Karen Hulda Hrafnsdóttir inn í liðið og spilaði alla leiki liðsins í deildinni eftir það. Hún þreytti þar frumraun sína í efstu deild og skoraði að auki sitt fyrsta mark í efstu deild í sumar. Karen Hulda var nýorðin 17 ára þegar hún kom inn í byrjunarliðið og var fljót að sanna að þar átti hún skilið sæti. Hún hafði enda góðan kennara sér við hlið í hinni miðvarðarstöðunni. 

Karen Hulda Hrafnsdóttir með verðlaunagripinn sem hún hlaut á lokahófinu í gærkvöld sem efnilegasti leikmaður ársins. Gefandi verðlaunagripa er JB úr & skart á Akureyri. Mynd: Ármann Hinrik.

Karen Hulda hóf meistaraflokksferilinn með Dalvík/Reyni sumarið 2025 í 2. deildinni. Þar spilaði hún tíu leiki í 2. deildinni, einn í Mjólkurbikarnum og tvo í Lengjubikarnum. Hún kom síðan inn í meistaraflokkshópinn hjá Þór/KA í fyrrahaust og gerði sinn fyrsta samning við félagið í júlí á þessu ári. Karen Hulda spilaði samanlagt 24 leiki fyrir Þór/KA á árinu, 19 í Bestu deildinni, einn í Mjólkurbikarnum og fjóra í Lengjubikarnum. 

Fróðleikur að loknu tímabilinu

  • Markahæst: Erin Flurey
    Besta deildin: 16 leikir - 8 mörk
    Allt tímabilið: 17 leikir - 11 mörk
  • Markahæst íslenskra: Margrét Árnadóttir
    Besta deildin: 21 leikur - 6 mörk
    Allt tímabilið: 25 leikir - 7 mörk
  • Flestar stoðsendingar: Hulda Ósk Jónsdóttir
    Besta deildin: 21 leikur - 7 stoðsendingar
  • Þessar spiluðu alla leiki liðsins í Bestu deildinni
    Allie Augur
    Amalía Árnadóttir
    Arna Sif Ásgrímsdóttir
    Hulda Ósk Jónsdóttir
    Margrét Árnadóttir
    María Dögg Jóhannesdóttir
  • Þessar spiluðu allar mínútur í öllum leikjum liðsins í Bestu deildinni
    Allie Augur
    Margrét Árnadóttir

Þór/KA spilaði samtals 27 leiki í KSÍ-mótum ársins, fimm í Lengjubikarnum, einn í Mjólkurbikarnum og 21 í Bestu deildinni. Liðið hélt markinu hreinu í tveimur leikjum af fimm í Lengjubikarnum, með Hörpu Jóhannsdóttur í markinu, og í átta leikjum af 21 í Bestu deildinni, með Allie Augur í markinu.

Nánar verður farið yfir fróðleik og tölur yfir tímabilið á næstu dögum.