Byrjunarliðið:
Fremri röð frá vinstri: Birgitta Rún Finnbogadóttir, Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir, Angela Mary Helgadóttir, Margrét Árnadóttir og Allie Augur.
Aftari röð frá vinstri: Libby Moore, Hildur Anna Birgisdóttir, Amalía Árnadóttir, Karen Hulda Hrafnsdóttir, María Dögg Jóhannesdóttir og Arna Sif Ásgrímsdóttir.
- - -
Þrátt fyrir nokkur tækifæri tókst okkar stelpum ekki að koma boltanum í mark á Kópavogsvelli í gær þegar Þór/KA sótti Breiðablik heim í 14. umferð Bestu deildarinnar. Breiðablik skoraði tvívegis og hirti öll stigin.
Gestgjafarnir byrjuðu af meiri krafti og náðu forystunni strax á 3. mínútu. Bæði lið fengu vítaspyrnu í fyrri hálfleiknum en hvorugu liðinu tókst að nýta spyrnurnar. Breiðablik með 1-0 forystu í leikhléi. Þegar um átta mínútur voru liðnar af seinn hálfleiknum kom annað mark, en þrátt fyrir nokkur ágæt tækifæri tókst Þór/KA ekki að minnka muninn og niðurstaðan 2-0 tap.
Þó svo þetta hafi verið 14. umferð mótsins hafa öll liðin aðeins lokið 13 leikjum, en eins og áður hefur komið fram var 10. umferð mótsins færð aftur fyrir 18. umferðina og verður spiluð 6. september. Að loknum 13 leikjum er Þór/KA í 8. sætinu með 12 stig. Enn er baráttan í neðri hluta deildarinnar gríðarlega jöfn og spennandi og aðeins sex stiga munur á liðunum í 5. og 10. sætinu.
Breiðablik - Þór/KA 2-0 (1-0)
Tölur og fróðleikur
- 1 - Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir var í byrjunarliði Þórs/KA og er þetta hennar fyrsti leikur í byrjunarliði í Bestu deildinni. Hún á samanlagt að baki 27 leiki í meistaraflokki, 19 með Þór/KA og átta með Völsungi.
- 1 - Emma Júlía Cariglia (2011) kom inn í hópinn fyrir leikinn gegn Breiðabliki og kom inn af varamannabekknum á 87. mínútu. Þetta er hennar fyrsta innkoma í leik í meistaraflokki og þar með einnig hennar fyrsti leikur í Bestu deildinni. Emma Júlía fetar í fótspor móður sinnar, Þóru Pétursdóttur, sem spilaði fyrir Þór/KA og Þór/KA/KS frá 1999 til 2005 og þar áður fyrir sameiginlegt lið Akureyringa undir merkjum ÍBA 1997-1998. Samkvæmt vef KSÍ á Þóra 124 meistaraflokksleiki að baki með Þór/KA og fjóra með ÍBA. Þá á hún einnig einn leik með U21 landsliði Íslands skv. vef KSÍ, en Emma Júlía hefur nú þegar farið fram úr móður sinni og hefur spilað sex landsleiki með U16 og U15 landsliðum Íslands.
- 10 - Erin Flurey spilaði sinn 10. leik í Bestu deildinni með Þór/KA. Hún hefur skorað fjögur mörk í þessum tíu leikjum.
- 210 - Arna Sif Ásgrímsdóttir spilaði sinn 210. leik fyrir Þór/KA í efstu deild. Hún er þar með komin upp í 6. sæti yfir þær knattspyrnukonur sem hafa leikið flesta leiki í efstu deild fyrir sama félag. Frá því í vor þegar hún náði 200 leikja markinu hefur hún farið fram úr Hörpu Þorsteinsdóttur (205), Rakel Logadóttur (207) og í gær fór hún fram úr Auði Skúladóttur (209). Gangi allt að óskum gæti hún náð þremur í viðbót á þessu tímabili og komið sér fyrir í 3. sætinu. Til upprifjunar má benda á tölfræðipunkta í frétt þegar Arna Sif spilaði sinn 300. meistaraflokksleik fyrir Þór/KA fyrr í sumar - sjá hér.
- 220 - Margrét Árnadóttir spilaði sinn 220. meistaraflokksleik fyrir Þór/KA, samanlagt í öllum KSÍ mótum og Evrópukeppni.
Hópurinn
- Byrjunarlið: Allie Augur (m), Angela Mary Helgadóttir, Libby Moore (Agnes Birta, 70'), María Dögg Jóhannesdóttir, Karen Hulda Hrafnsdóttir, Hildur Anna Birgisdóttir, Amalía Árnadóttir (Karen María, 70'), Birgitta Rún Finnbogadóttir (Emma Júlía, 87'), Arna Sif Ásgrímsdóttir (f)(Aníta, 87'), Margrét Árnadóttir, Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir (Hulda Ósk, 59').
- Varamenn: Harpa Jóhannsdóttir (m), Karen María Sigurgeirsdóttir (70'), Eva Dolina-Sokolowska, Agnes Birta Stefánsdóttir (70'), Hulda ÓskJónsdóttir (59'), Emma Júlía Cariglia (87'), Aníta Ingvarsdóttir (87').
Næstu fimm
- 7. ágúst kl. 18
Þór/KA - Fram
- 13. ágúst kl. 18
Víkingur - Þór/KA
- 21. ágúst kl. 18
Þór/KA - Valur
- 29. ágúst kl. 14
Þróttur - Þór/KA
- 6. september kl. 14
FH - Þór/KA
Ein öðruvísi íþróttamynd
Þegar fréttaritari Þórs/KA og myndasmiður á vegum Íslenskrar knattspyrnu gerðu sig líklega til að mynda byrjunarlið Þórs/KA fyrir leikinn voru menn aðeins of fljótir á sér. Fyrirliðinn Arna Sif var enn að afgreiða sín mál með kollega sínum úr Breiðabliki og dómurum leiksins og aðeins tíu mættar í myndatökuna. Jóhann Hreiðarsson aðstoðarþjálfari sýndi glöggskyggni sína í verki og benti ljósmyndurum á að það vantaði eina á myndina.
Til gamans látum við tíu kvenna byrjunarliðið fylgja hér með ásamt fullu byrjunarliði á aðalmynd fréttarinnar.

Fyrsti leikur

Emma Júlía Cariglia - fyrsti meistaraflokksleikur og fyrsti leikur í Bestu deildinni.